Lóan komin til landsins

Óvenjumargar heiðlóur höfðu vetursetu á suðvestanverðu landinu.
Óvenjumargar heiðlóur höfðu vetursetu á suðvestanverðu landinu. mbl.is/Ómar Óskarsson

Lóan er komin til landsins. Frá þessu var greint á Facebook-síðu Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands nú fyrir stundu. Fjórar heiðlóur sáust á flugi við Einarslund á Höfn í morgun og eru það sagðar fyrstu lóurnar sem fréttist af þetta vorið, sem ekki höfðu vetursetu á landinu.

Óvenjumargar heiðlóur höfðu þó vetursetu á suðvestanverðu landinu að því er fram kemur í færslunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert