Komust ekki út úr rútunni

Ljósmynd/Ragnhildur Sævarsdóttir

Rúta fór út af nærri Hrafnagjá við Gjábakka á Þingvallavegi á fjórða tímanum í dag en innanborðs eru bresk skólabörn sem eru á ferðalagi hér á landi.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi urðu engin slys á fólki en farþegarnir komast hins vegar ekki út. Líklega vegna þess að ekki sé hægt að opna dyrnar á rútunni þar sem hún hallast til hægri þar sem dyrnar eru.

Lögreglan fór á vettvang en ekki þótti ástæða til þess að senda sjúkrabifreið á staðinn. 

Ljósmynd/Ragnhildur Sævarsdóttir
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert