„Mr. Prime Minister...“

Sigmundur Davíð í viðtalinu örlagaríka.
Sigmundur Davíð í viðtalinu örlagaríka. Skjáskot

„Mr. Prime Minister, what can you tell me about a company called Wintris?“ var líklega ein áhrifamesta setning síðasta árs. Í dag er slétt ár síðan landsmenn fengu að sjá Sigmund Davíð Gunnlaugsson, þáverandi forsætisráðherra, ganga út úr viðtali við Sven Bergman, fréttamann SVT, sem tekið hafði verið upp í ráðherrabústaðnum tæpum mánuði fyrr.

Í þættinum var greint frá því að eiginkona Sigmundar Davíðs ætti háar fjárhæðir í félaginu Wintris á Bresku-Jómfrúareyjunum, fjármuni sem hún hafði erft fyrir bankahrunið og enn fremur kröfu á föllnu íslensku bankana.

Afleiðingarnar af þættinum voru gríðarlegar. Viðtalið var sýnt í Kastljósi sunnudagskvöldið 3. apríl 2016 og á miðvikudeginum 6. apríl voru Íslendingar komnir með nýjan forsætisráðherra.  

Tillaga um vantraust „það eina í stöðunni“

4. apríl rann upp bjartur og fagur í miðborginni. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar tóku daginn snemma og voru komnir á skrifstofur sínar við Austurstræti klukkan átta um morguninn til þess að funda um stöðuna. Í samtali við mbl.is sagði Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, að á fundinum hafi verið tekin einróma ákvörðun um að dreifa tillögum um van­traust á rík­is­stjórn­ina, þingrof og kosn­ing­ar á þing­flokks­fund­um stjórn­ar­and­stöðunn­ar þann dag.

Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttir mæta til fundar fulltrúa stjórnarandstöðunnar …
Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttir mæta til fundar fulltrúa stjórnarandstöðunnar að morgni 4. apríl 2016. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Und­ir þess­um kring­um­stæðum er þetta það eina í stöðunni,“ sagði Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þáverandi þingmaður Pírata, jafnframt í sam­tali við mbl.is. Birgitta Jónsdóttir, flokkssystir Helga, tók í sama streng og sagði það óskandi að Sigmundur Davíð myndi sjá sóma sinn í því að skila umboði sínu áður en þingfundur hæfist klukkan 15. Birgitta sagði að það væri það eina siðlega í stöðunni. Aðspurð hvernig hún héldi að dag­ur­inn myndi þró­ast sagði hún það erfitt að segja. „Það er svo óút­reikn­an­legt fólk sem maður er að vinna með.“

Helgi Hrafn bætti við að þetta væri auðvitað staða sem kæmi sem bet­ur fer ekki oft upp og því væri erfitt að segja til um fram­haldið. „En eitt er ljóst, kraf­an er al­veg skýr. Ef for­sæt­is­ráðherra á ekki að segja af sér und­ir þess­um kring­um­stæðum, hvenær þá?“

„Und­ir þess­um kring­um­stæðum er þetta það eina í stöðunni,“ sagði …
„Und­ir þess­um kring­um­stæðum er þetta það eina í stöðunni,“ sagði Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þáverandi þingmaður Pírata, um vantrauststillöguna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sigmundur sagðist ekki ætla að hætta

Atburðarásin þennan dag og næstu daga var hreint út sagt ótrúleg. Sigmundur Davíð vísaði því alfarið á bug að hafa leynt eignarhaldi konu sinnar á Wintris og að hann hafi verið báðum megin við borðið í samskiptum við kröfuhafa bankanna og að hann hafi átt helming félagsins um tíma, á þeim forsendum að honum hefði ekki verið skylt að greina frá fjár­mál­um konu sinn­ar og að hann hefði ekki komið að sam­skipt­um við full­trúa kröfu­hafa.

Í hádegisfréttum Stöðvar 2 sagðist hann ekki ætla að segja af sér vegna afhjúpunarinnar í þættinum en baðst af­sök­un­ar á að hafa staðið sig „öm­ur­lega“ í viðtalinu.

„Ég hef hvorki íhugað að hætta út frá þessu máli né ætla ég að hætta út frá þessu máli,“ sagði Sig­mund­ur Davíð.

Þingflokksfundur hófst klukkan 15 en þá var fólk farið að safnast saman á mótmæli á Austurvelli sem boðað hafði verið til á Facebook. Mótmælin hófust formlega klukkan 17 og tóku þúsundir manna þátt og kröfðust þess að þingkosningum yrði flýtt um ár og þær haldnar strax um vorið, þ.e. einu ári á undan áætlun.

Að sögn skipuleggjenda mættu um 22.000 manns á Austurvöll þennan bjarta mánudag og voru þau sögð fjölmennustu mótmæli Íslandssögunnar. Aðkoma Sigmundar Davíðs að Panama-skjölunum hafði vakið heimsathygli og óskuðu 75 sjónvarpsstöðvar frá flestum Evrópulöndum eftir því við RÚV að fá að sýna beint frá mótmælafundi við Alþingishúsið.

Þúsundir manna mótmæltu fyrir utan Alþingishúsið.
Þúsundir manna mótmæltu fyrir utan Alþingishúsið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sagðist hafa nefnt „ým­is­legt í óðag­oti“

Andrúmsloftið í þingsalnum var spennuþrungiið og m.a. þurfti forseti Alþingis að biðja þingmenn að gæta orða sinna eftir að Guðmundur Steingrímsson, þáverandi þingmaður Bjartrar framtíðar, kallaði Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra þekktasta fjárglæframann heimsbyggðarinnar. Þá sagði Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata, að Ísland væri undir auðvaldsstjórn. Sagðist hún síðan hún settist á þing oft hafa velt því fyrir sér hvort hún væri stödd á þingi í vestrænu lýðræðisríki. Svaraði hún því til að svo virtist ekki alltaf vera. 

Katrín Jakobsdóttir fór í pontu og bað Sigmund Davíð um að svara hvers vegna hann hafi ekki bara sagt satt í viðtalinu um Wintris. Sigmundur Davíð svaraði Katrínu og sagði svör sín í viðtalinu hafi byggst á undr­un vegna spurn­ing­anna sem hann var spurður og hann hafi nefnt „ým­is­legt í óðag­oti“. Með því hafi hann ekki reynt að dreifa at­hygli frá mál­inu og seg­ist síðan hafa gefið af­drátt­ar­laus svör.

Sigmundur Davíð fylgist með umræðum á þingi 4. apríl. Við …
Sigmundur Davíð fylgist með umræðum á þingi 4. apríl. Við hlið hans standa Svandís Svavarsdóttir og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingkonur VG. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Katrín spurði hann þó hvort það væri ekki eðli­leg krafa að hann segði satt í viðtöl­um jafn­vel þó að spurn­ing­arn­ar kæmu hon­um á óvart. Tók for­sæt­is­ráðherra und­ir að það væri eðli­leg krafa. Ítrekaði hann að hvorki hann né kona hans hafi átt eign­ir í skatta­skjóli. Hann hafi þegar gert ít­ar­lega grein fyr­ir eign­ar­haldi fé­lags­ins og eign­um þess.

Þá ítrekaði hann að hann hafi svarað afdráttarlaust um leið og hann hafi verið spurður beint um félagið. Sigmundur Davíð kláraði hins vegar ekki þingfundinn og var farinn út úr þinghúsinu rétt fyrir klukkan 17. Sig­mund­ur Davíð sagði í sam­tali við fjöl­miðla þegar hann yf­ir­gaf þingsal­inn að hann væri að verða of seinn. Hvert ferðinni var heitið lét hann hins veg­ar ekki uppi. 

Þingfundi var síðan slitið klukkan 17:43 og þjóðin beið átekta, stór hluti hennar fyrir utan Alþingishúsið við Austurvöll.

Kannaðist ekki við að samstarfið héngi á bláþræði

Sigmundur Davíð tók þriðjudaginn 5. apríl snemma og var mættur í Ísland í bítið á Bylgjunni á níunda tímanum. Þar sagðist hann ekki kannast við það að ríkisstjórnarsamstarf Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks héngi á bláþræði.

„Nei, sam­starfið hang­ir ekki á bláþræði vegna umræðu núna frek­ar en umræðu áður sem oft hef­ur verið hörð. Sam­starf hang­ir ein­göngu á bláþræði ef menn vilja ekki starfa sam­an,“ sagði Sigmundur Davíð. Seinna sama morgun funduðu Sigmundur Davíð og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks og þáverandi fjármálaráðherra, en Bjarni kom til landsins fyrr um morguninn eftir páskafrí. Á Facebook-síðu sinni greindi Sigmundur frá því að á fundinum hafi verið farið yfir það að „ef þing­menn flokks­ins treystu sér ekki til að styðja rík­is­stjórn­ina við að ljúka sam­eig­in­leg­um verk­efn­um okk­ar myndi ég rjúfa þing og boða til kosn­inga hið fyrsta.“

Sigmundur Davíð á leið inn í Stjórnarráðið 5. apríl 2016.
Sigmundur Davíð á leið inn í Stjórnarráðið 5. apríl 2016. mbl.is/Eggert

„Bless, bless“

Sigmundur fór síðan á Bessastaði á fund Ólafs Ragnars Grímssonar, þáverandi forseta. Hann gaf ekki upp efni fundarins við blaðamenn á staðnum, hvorki fyrir né eftir fundinn.

Svona voru sam­ræður Sig­mund­ar Davíðs og blaðamanna eft­ir fundinn:

Blaðamaður: Hvert var efni þessa fund­ar?
Sig­mund­ur Davíð: Við vor­um að spjalla. 
Blaðamaður: Verður þingrof? Verður þing rofið að þinni ósk? Hver er niðurstaða fund­ar­ins?
Sig­mund­ur Davíð: Við sjá­um til með þetta allt sam­an. 
Blaðamaður: Kem­ur það í ljós í dag? Ætlar þú að halda áfram sem for­sæt­is­ráðherra?
Sig­mund­ur Davíð: Bless, bless! 

„Bless, bless!“
„Bless, bless!“ mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hins vegar vildi Ólafur Ragnar ræða við fjölmiðla og bauð hann þeim inn á Bessastaði. Þar sagði hann að erindi forsætisráðherrans hafi verið að kanna af­stöðu hans og óska eft­ir því að hann veitti hon­um heim­ild til að rjúfa þing nú eða síðar. Með Sig­mundi Davíð voru emb­ætt­is­menn for­sæt­is­ráðuneyt­is­ins sem höfðu bréf meðferðis sem óskað var eft­ir að for­seti und­ir­ritaði. 

Ólaf­ur Ragn­ar sagði að þeir Sig­mund­ur hefðu rætt málið nokkuð lengi og að hann hefði út­skýrt af­stöðu sína. „For­seti hlýt­ur að meta hvort stuðning­ur sé við þá ósk hjá rík­is­stjórn­ar­flokk­un­um og hvort lík­legt sé að þingrof leiði til far­sæll­ar niður­stöðu, bæði fyr­ir þjóðina og stjórn­ar­farið í land­inu,“ sagði Ólaf­ur Ragn­ar. 

For­set­inn sagði að for­sæt­is­ráðherra hefði ekki getað full­vissað hann um af­stöðu Sjálf­stæðis­flokks­ins til að verða við þingrofs­beiðninni. Í ljósi þess tjáði Ólaf­ur Ragn­ar hon­um að hann væri ekki til­bú­inn til þess, nú eða án þess að hafa rætt við formann flokks­ins eða jafn­vel for­menn annarra flokka, að veita hon­um heim­ild til að rjúfa þing. 

For­set­inn sagði að for­sæt­is­ráðherra hefði ekki getað full­vissað hann um …
For­set­inn sagði að for­sæt­is­ráðherra hefði ekki getað full­vissað hann um af­stöðu Sjálf­stæðis­flokks­ins til að verða við þingrofs­beiðninni. Í ljósi þess tjáði Ólaf­ur Ragn­ar hon­um að hann væri ekki til­bú­inn til þess, nú eða án þess að hafa rætt við formann flokks­ins eða jafn­vel for­menn annarra flokka, að veita hon­um heim­ild til að rjúfa þing. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samþykktu að Sigurður Ingi tæki við

Í kjölfarið hófust þingflokksfundir hjá ríkisstjórnarflokkunum. Sjálfstæðismenn hittust í Valhöll en Framsóknarmenn í þinghúsinu. Bjarni Benediktsson fór snemma af fundinum og lá leiðin til Bessastaða.

Á sama tíma var samþykkt á þingflokksfundi Framsóknarflokksins að Sig­mund­ur Davíð myndi stíga til hliðar sem for­sæt­is­ráðherra og Sig­urður Ingi Jó­hanns­son taki við embætti hans. Sig­mund­ur Davíð yrði hins vegar áfram formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins sem og þingmaður. Til stóð að til­lag­an yrði bor­in und­ir for­svars­menn Sjálf­stæðis­flokks­ins seinna sama dag.

Bjarni, sem var á þeim tíma á Bessastöðum, ræddi við blaðamenn eftir fund sinn við forsetann. Þá höfðu borist fréttir af ákvörðun Sigmundar um að stíga til hliðar og sagði Bjarni það stórfrétt. Sagði Bjarni að á fundi sínum með Sigmundi, sem forsætisráðherrann þáverandi skrifaði um á Facebook eins og fyrr segir, hafi hann sagt að ekki yrði búið við breytt ástand.

Bjarni ræðir við blaðamenn á Bessastöðum.
Bjarni ræðir við blaðamenn á Bessastöðum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bjarni sagði að nú vildi hann fá tíma til að fara yfir stöðuna með Sig­urði Inga en myndi fyrst funda með þing­flokki Sjálf­stæðis­flokks­ins. Sagði hann það bæði sjálfsagt og eðli­legt að ræða áfram­hald­andi sam­starf flokk­anna. „Það verður nú ekki annað sagt en að þetta inn­grip í há­deg­inu í dag hafi verið mik­il­vægt og ég þakka for­set­an­um fyr­ir að bregðast rétt við á viðkvæmu augna­bliki þar sem það var al­gjör­lega órætt milli flokk­anna hvort það væri komið að því að fara fram á þingrof,“ sagði Bjarni.

Einhugur á að láta reyna á áframhaldandi samstarf

Frá Bessastöðum fór Bjarni aftur í Valhöll þar sem hann ræddi við þingflokk sinn. Sagði hann við fjölmiðlamenn að það hafi verið einhugur í hópnum að láta reyna á áfram­hald­andi sam­starf stjórn­ar­flokk­anna. „Það var góð samstaða um það,“ seg­ir hann í sam­tali við mbl.is. Eft­ir fund­inn hitt­ust hann og Sig­urður Ingi Jó­hanns­son, vara­formaður Fram­sókna­flokks­ins, og ræddu málið.

„Þetta var stutt­ur fund­ur og við vor­um sam­mála um meg­in­at­riðin,“ seg­ir Bjarni, spurður um hvað rætt hafi verið á fund­in­um.

Þá sagði Bjarni að tillaga Framsóknarflokksins um að Sigurður Ingi yrði forsætisráðherra yrði nú skoðuð af sjálfstæðismönnum. Sagðist hann ekki gera kröfu um forsætisráðuneytið sjálfur.

Sigurður Ingi mætti í Ísland í dag um kvöldið og sagði „dramatíska daga“ standa yfir, fordæmalausa í sögunni. Sagði hann jafnframt að það væri niðurstaða dags­ins að reiðin í sam­fé­lag­inu sýndi að það að aðkoma for­sæt­is­ráðherra að margum­ræddu af­l­ands­fé­lagi á Bresku-Jóm­frúareyj­um þætti óá­sætt­an­leg.

Framsóknarmenn lögðu til að Sigurður Ingi tæki við af Sigmundi …
Framsóknarmenn lögðu til að Sigurður Ingi tæki við af Sigmundi sem forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hann ít­rekaði þó að Sig­mund­ur Davíð hefði gert hreint fyr­ir sín­um dyr­um og sagði virðing­ar­vert af hon­um að stíga til hliðar til að gera rík­is­stjórn­inni kleift að klára ákveðin verk­efni. Sig­urður Ingi sagði jafnframt að Sig­mund­ur Davíð nyti stuðnings þing­flokks fram­sókn­ar­manna enda hefði hann unnið mik­il­væg störf í þágu lands­ins.

Þriðjudagurinn 5. apríl 2016 var vægast sagt viðburðaríkur.
Þriðjudagurinn 5. apríl 2016 var vægast sagt viðburðaríkur.

Óljós tilkynning forsætisráðuneytisins vakti upp spurningar

Þegar miðvikudagurinn 6. apríl rann upp var þrátt fyrir atburðarás þriðjudagsins nokkur óvissa um hvað hefði eiginlega gerst.

Var það þá helst tilkynning forsætisráðuneytisins til erlendra fjölmiðla sem send var út á þriðjudagskvöldið þar sem fram kom að Sig­mund­ur Davíð væri ekki að hætta og að Sig­urður Ingi hafi verið verið beðinn um að taka embættið að sér í „ótiltek­inn tíma“. 

Mikil óánægja var með tilkynninguna sem þótti frekar óljós miðað við orð ráðamanna daginn áður.

Fréttatilkynning forsætisráðuneytisins til erlendra fjölmiðla vakti upp spurningar.
Fréttatilkynning forsætisráðuneytisins til erlendra fjölmiðla vakti upp spurningar. mbl.is/Sigurður Bogi

Jóhannes Þór Skúlason, sem var þá aðstoðarmaður Sigmundar, sagði í samtali við mbl.is að tilkynning forsætisráðuneytisins væri í takt við stjórnskipunarlög og vitnaði í 15. grein stjórn­ar­skrár­inn­ar sem segir að forseti veiti ráðherra lausn. Benti Jóhannes jafnframt á að Sig­mund­ur hefði enn ekki sagt af sér.

„Þegar hann mun gera það verður greint frá því eins og eðli­legt er, eft­ir því sem rétt er, sem verður vænt­an­lega á næstu dög­um. Og varðandi þetta með óákveðinn tíma þá er þetta nú bara ná­kvæm­lega það sem gerðist, eins og þeir sögðu þegar þeir komu út, þá var til­lag­an þannig að það var lagt til við þing­flokk­inn að [Sig­mund­ur] stigi til hliðar og Sig­urður Ingi tæki við embætt­is­skyld­um ráðherra um lengri eða skemmri tíma, eft­ir því sem semd­ist milli flokk­anna. Þannig að þetta er nú bara ná­kvæm­lega það sem gerðist, og bara til að svara spurn­ing­um um hvort hann sé bú­inn að segja af sér eða ekki. Þetta er bara tækni­lega rétt,“ sagði Jó­hann­es.

„Ég skildi þetta nú þannig að hann væri að hætta sem for­sæt­is­ráðherra. En þessi til­kynn­ing [for­sæt­is­ráðuneyt­is­ins] er sér­stök og ég ein­fald­lega skil hana ekki,“ sagði til að mynda Unn­ur Brá Konráðsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, í sam­tali við mbl.is.

Birgir Ármannsson, flokksbróðir Unnar, tók í sama streng kvöldið áður í samtali við mbl.is um stöðu mála.

„Ég skildi hana þannig eins og hún kem­ur fram í til­kynn­ingu þing­flokks fram­sókn­ar­manna, þ.e. að hann [Sig­mund­ur Davíð] væri að taka ákvörðun um að stíga til hliðar, Sig­urður Ingi myndi taka við og að Sig­mund­ur myndi sitja áfram sem formaður og alþing­ismaður,“ sagði Birgir.

Þáverandi þingflokksformaður Bjartrar framtíðar, Brynhildur Pétursdóttir, sagði seinna á miðvikudeginum stjórnarandstöðuna ganga út frá því að fyrir lok dags myndi liggja fyrir hvort Sigmundur hafi sagt af sér eða hvort hann ætlaði í leyfi.

Höskuldur varð maður kvöldsins

Það var síðan um kvöldið sem enn einn sögulegur viðburður átti sér stað þessa vikuna, þegar Höskuldur Þórhallsson, þáverandi þingmaður Framsóknarflokksins, greindi frá því að Sigurður Ingi myndi gegna embætti forsætisráðherra. Það sem var þó sögulegt var að Höskuldur varð þarna maður kvöldsins án þess að ætla sér það.

Fyrir utan það að greina frá nýjum forsætisráðherra sagði Höskuldur blaðamönnum að Lilja Alfreðsdóttir yrði nýr utanríkisráðherra.

Höskuldur segir frá nýjum ráðherrum í ríkisstjórn Íslands.
Höskuldur segir frá nýjum ráðherrum í ríkisstjórn Íslands. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Á Facebook-síðu sinni um kvöldið sagðist Höskuldur hafa verið á leið heim þegar hann „gekk í flasið á blaðamönn­um“.

 „Eft­ir lang­an fund í þing­flokkn­um biðum við á meðan Sig­urður Ingi og Sig­mund­ur Davíð færu fram til að svara blaðamönn­um. Ég brá mér afsíðis í hliðar­her­bergi til að tala í sím­ann. Þegar ég kláraði sam­töl­in sem tóku alllang­an tíma var ég á leið heim og gekk í flasið á blaðamönn­um,“ skrif­ar Hösk­uld­ur.

Bæt­ir hann við að ekki hafi annað hvarflað að sér en að odd­vit­arn­ir tveir væru þegar bún­ir að svara fyr­ir­spurn­um blaðamanna. „Þetta var fer­legt – ég viður­kenni það – en svona er þetta – ég ætlaði mér sko al­deil­is ekki að vera ein­hvers ­kon­ar „blaðafull­trúi“ nýju stjórn­ar­inn­ar.“

Sigurður Ingi og Bjarni kynna nýju ríkisstjórnina, en nokkrum mínútum …
Sigurður Ingi og Bjarni kynna nýju ríkisstjórnina, en nokkrum mínútum áður hafði Höskuldur greint frá helstu atriðum. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Guðni varð forseti og Sigurður Ingi formaður

Hvað gerðist á næstu dögum, vikum og mánuðum þekkja flestir.  Sigurður Ingi tók við sem forsætisráðherra og Sigmundur Davíð fór í frí.

Ólafur Ragnar hætti við að hætta og tilkynnti framboð sitt í forsetakosningunum 18. apríl við misjöfn viðbrögð en dró framboðið til baka nokkrum vikum síðar. Sagnfræðiprófessor úr Háskóla Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, varð næstum því daglegur gestur í sjónvörpum landsmanna dagana og vikurnar eftir viðburðina á Austurvelli þar sem hann ræddi málin í sögulegu samhengi og heillaði þjóðina. Varð það svo að Guðni, eftir fjölmargar áskoranir, bauð sig fram í kosningunum og bar sigur úr býtum eins og frægt er orðið.

Ólafur Ragnar tilkynnir að hann sé hættur við að hætta.
Ólafur Ragnar tilkynnir að hann sé hættur við að hætta. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Guðni kynnti forsetaframboð sitt í Salnum í Kópavogi 5. maí …
Guðni kynnti forsetaframboð sitt í Salnum í Kópavogi 5. maí 2016. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Wintris-málið dró áfram dilk á eftir sér, alla vega innan Framsóknarflokksins. Deilur áttu sér stað um stöðu Sigmundar sem formanns flokksins og kölluðu margir eftir því að Sigurður Ingi tæki við sem formaður. Svo virtist sem endurkoma Sigmundar í stjórnmál myndi fara betur en margir bjuggust við til að byrja með. Hann til að mynda sigraði fyrrnefndan Höskuld Þórhallsson í prófkjöri flokks­ins í Norðaust­ur­kjör­dæmi sem varð til þess að Hösk­uld­ur hætti í stjórn­mál­um. Kallað var eft­ir því að boðað yrði til flokksþings fyr­ir þing­kosn­ing­ar og var orðið við því.

Skorað var á Sig­urð Inga að bjóða sig fram til for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins gegn Sig­mundi Davíð. Sig­urður sagðist lengi vel ekki ætla að gefa kost á sér og hafði raun­ar lýst því yfir að hann færi aldrei gegn Sig­mundi en til­kynnti síðan for­manns­fram­boð viku fyr­ir flokksþingið. Sig­urður sigraði Sig­mund Davíð með 52,7% at­kvæða gegn 46,8%. Lilja Al­freðsdótt­ir var kjör­in vara­formaður.

Sigurður Ingi fagnar formannskjörinu á flokksþingi Framsóknarflokksins í september 2016.
Sigurður Ingi fagnar formannskjörinu á flokksþingi Framsóknarflokksins í september 2016. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Sigmundur ásamt konu sinni Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur þegar úrslitin voru …
Sigmundur ásamt konu sinni Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur þegar úrslitin voru ljós. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Ógæfu­sam­asti þjóðarleiðtog­inn

Gengið var til kosninga 29. október og stóð Sjálfstæðisflokkurinn uppi með mest fylgi eða 29%. VG hlaut 15,9%, Píratar 15,9% og Framsókn 12,7%. Viðreisn hlaut 10,5%, Björt framtíð 7,2% og Samfylkingin 5,7%. Í janúar náðist loksins að mynda ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar.

Það er ekki hægt að neita því að afhjúpunin um Wintris hafi haft gríðarleg áhrif á pólitískan feril Sigmundar. Í árs­upp­gjöri The Guar­di­an var Sig­mund­ur Davíð sagður ógæfu­sam­asti þjóðarleiðtog­inn sem ljóstrað var upp um í skjöl­un­um.

 „Af öll­um þjóðarleiðtog­un­um sem kölluðu yfir sig skömm með auði föld­um á af­l­ands­svæðum var eng­inn óheppn­ari en Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son. Ógæfu­sami for­sæt­is­ráðherra Íslands náðist á mynda­vél reyna að finna út úr því hvernig hann ætti að út­skýra und­ir­skrift sína á skjali Wintris Inc., fyr­ir­tæk­is á Bresku-Jóm­frúareyj­um sem átti hluti í ein­um af föllnu bönk­um lands­ins,“ seg­ir í um­fjöll­un blaðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert