Dagurinn markaði hvorki endi né upphaf

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Sá í fjölmiðli að ár væri liðið frá því að ég steig til hliðar sem forsætisráðherra ásamt túlkun viðkomandi miðils á atburðarás þess dags.

Þannig hefst pistill Sigmundar Davíðs Gunnlaugsson, þingmanns Framsóknarflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, á Facebook-síðu hans. Ár er síðan hann hætti sem forsætisráðherra vegna uppljóstrana í Panamaskjölunum um eignir í aflandsfélögum.

Sigmundur segist sjálfur ekki hafa hugsað út í það hvaða dagur væri, enda væri hann honum ekki eins hugleikinn og þeim sem undirbjuggu viðburðinn. „Í huga mínum markaði dagurinn enda hvorki endi né upphaf heldur bara eina hindrun í vinnu sem alltaf var ljóst að yrði erfið og myndi kalla á mótspyrnu. Að vísu stóra hindrun en stærstu vonbrigðin komu hins vegar síðar á árinu.

Forsætisráðherrann fyrrverandi segist hafa fundið meiri stuðnings og eignast fleiri vini en nokkurn tímann áður á lífsleiðinni. Margt hafi komið í ljós undanfarið ár og fleira eigi eftir að skýrast frekar á næstunni. „Þess vegna læt ég það ekki trufla mig þótt þeir sem leikstýrðu atburðarás fyrir ári reyni nú að nota tækifærið til viðhalda gömlu frásögninni þegar allir sem fylgjast með vita betur,“ skrifar Sigmundur.

Hann kveðst enn sannfærðari en áður um að það sé hægt að gera grundvallarbreytingar á íslensku samfélagi til hins betra og að hægt verði að ná árangri jafnvel þótt það geti þurft að takast á við voldugustu valdakerfin hér á landi og erlendis.

Kærar þakkir til allra þeirra sem hafa hvatt mig til dáða síðast liðið ár. Hvert einasta tilvik hefur skipt mig máli og veitt mér afl til berjast áfram fyrir Ísland. Það ætla ég að gera á meðan ég fæ tækifæri til.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert