Skortir skilning á ferðaþjónustunni

Jökulsárlón á Breiðamerkursandi.
Jökulsárlón á Breiðamerkursandi. Rax / Ragnar Axelsson

Það ríkir stjórnleysi í ferðaþjónustunni, að mati forráðamanns þýsku ferðaskrifstofunni Studiosus. Þar á bæ telja menn að fyrst núna sé forsvarsfólk ferðamála á Íslandi til í að hlusta á varnaðarorð þeirra – hinsvegar skorti íslenska ráðamenn allan skilning á atvinnugreininni. Þetta kemur fram í frétt Túrista.

Ísland er eitt þeirra 120 landa sem ferðaskrifstofan Studiosus skipuleggur ferðir til og síðustu fjóra áratugi hafa hópar á þeirra vegum lagt leið sína hingað til lands. Manfred Schreiber fer fyrir deildinni sem sér um ferðir til Norður-Evrópu og þar með til Íslands. Hann hefur miklar áhyggjur af stöðu íslenskrar ferðaþjónustu og vill leggja sitt að mörkum til að leysa þau vandamál sem blasa við greininni.

„Allt frá því í haust hefur hægt verulega á þeim mikla vexti sem við höfum upplifað síðustu ár í eftirspurn eftir Íslandsferðum. Fyrir því kunna að vera margar ástæður en verðlagið á Íslandi er örugglega ein af þeim. Þess vegna lít ég á umræðuna um komugjöld, gistináttaskatta og boðaða hækkun á virðisaukaskatti sem samstillt átak ríkisstjórnarinnar til að ganga að íslenskri ferðaþjónustu dauðri. Vandamálið er að sjóndeildarhringur sumra stjórnmálamanna virðist ekki ná lengra en til Vestmannaeyja. Þeir horfa ekki til annarra markaða og skilja ekki að svona aðgerðir draga úr eftirspurn. En svo lengi sem Kínverjar og Bandaríkjamenn halda áfram að fjölmenna til landsins þá finna stjórnvöld ekki fyrir afleiðingunum. Ég er þó viss um að meira segja þessar þjóðir hafi sín takmörk,” segir Schreiber í samtali við Túrista.

Fjölgunin langt umfram það sem er viðráðanlegt

Á síðasta ári fjölgaði ferðamönnum hér á landi um 40 prósent og að mati Schreiber er það langt umfram það sem getur talist viðráðanlegt, svo vel megi vera. „Þessi gríðarlega aukning síðustu ár er eins og flóðbylgja sem skall á landinu án þess að það væri undir hana búið. Hótelin, vegirnir, rúturnar, ferðamannastaðirnir, leiðsögumennirnir og ýmislegt fleira stendur einfaldlega ekki undir öllum þessum fjölda.”

Og ímynd Íslands sem áfangastaðar er að breytast til hins verra að mati Schreiber. „Það er ekki er langt síðan að eitt útbreiddasta dagblað Þýskaland sagði Ísland vera „Mallorca norðursins” vegna mannmergðarinnar. Það hefði ekki verið hægt að fá verri umsögn því þetta er í algjörlega þvert á þá ímynd sem Ísland hefur haft í huga Þjóðverja, sem land óspilltrar náttúru," segir Schreiber nefnir sem dæmi að einn daginn hafi fararstjóri Studiosus talið 81 rútu við Gullfoss síðastliðið sumar. „Það þýðir að það hafi verið þúsundir manna að skoða fossinn á sama tíma.”

Neikvæðum viðbrögðum fjölgar

Þessar auknu vinsældir Íslands hafa orðið til þess að nú heimsækja hópar Studiosus til dæmis ekki lengur Jökulsárlón og í staðinn er farið á minna þekkta staði. Nú eru þeir líka að fyllast og Schreiber telur átroðninginn vera ástæðu þess að ferðaskrifstofunni berast nú fleiri neikvæð viðbrögð frá viðskiptavinum sínum og líka frá fararstjórum. „Þetta eru klárlega vísbendingar um slæma þróun og við höfum áhyggjur af framtíðinni. Þess vegna höfum við reynt að ná eyrum forsvarsmanna íslenskrar ferðaþjónustu um nokkurt skeið en það er ekki fyrr en núna að við finnum fyrir áhuga á að takast á við þetta sameiginlega vandamál okkar. Flestir, ef ekki allir, átta sig nefnilega á þessari slæmu stöðu en enginn hefur verið til í að horfast í augu við vandamálið.”

Frétt Túrista í heild

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert