Ætluðu að loka kísilverinu

Umhverfisstofnun tilkynnti forsvarsmönnum United Silicon með bréfi miðvikudaginn fyrir páska …
Umhverfisstofnun tilkynnti forsvarsmönnum United Silicon með bréfi miðvikudaginn fyrir páska að ekki yrði hjá því komist að loka kísilverinu þar sem frá því streymdi fjöldi efna sem gætu haft langtímaáhrif á heilsufar fólks. Ljósmynd/United Silicon

Umhverfisstofnun tilkynnti forsvarsmönnum United Silicon með bréfi miðvikudaginn fyrir páska að ekki yrði hjá því komist að loka kísilverinu vegna þess að frá því streymdi fjöldi efna sem gætu haft langtímaáhrif á heilsufar fólks. Greint er frá þessu í Fréttablaðinu í dag.

Mbl.is greindi frá því í gær að ákveðið hafi verið á skír­dag að ef óund­ir­búið ofn­stopp, sem varaði í klukku­stund eða leng­ur, ætti sér stað myndi United Silicon ekki ræsa ofn­inn aft­ur, alla vega ekki á meðan norðlæg­ar átt­ir væru ríkj­andi.

Eldur kom upp í kísilveri United Silcon aðfaranótt þriðjudags og liggur framleiðsla nú niðri, en ekki liggur fyrir hversu lengi sú stöðvun mun vara.

Vegna brunans þurfti að fresta komu norskra sér­fræðinga í kísilverið um einn dag en þeir hyggj­ast rann­saka starf­sem­ina og reyna að finna út úr því hvernig hægt er að koma í veg fyr­ir lykt­ar­meng­un sem leggst yfir ná­grennið þegar kveikt er á brennslu­ofn­un­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert