Alvarleg aðför að velferðarkerfinu

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands hefur sent frá sér ályktun þar sem mótmælt er harðlega nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem felur að mati stjórnarinnar í sér alvarlega aðför að velferðarkerfinu.

Meðal annars séu réttindi atvinnuleitenda skert og bótatímabil atvinnuleysistrygginga stytt úr 30 mánuðum í 24 mánuði sem sé alvarleg aðför að grundvallarréttindum launafólks. Þrátt fyrir ítrekuð loforð um aukin framlög til heilbrigðisþjónustunnar sé rekstur hennar enn fremur áfram vanfjármagnaður.

Miðstjórn ASÍ tekur undir mikilvægi þess að setja þak á greiðsluþátttöku sjúklinga í heilbrigðisþjónustunni en ítrekar mótmæli sín gegn því að sú breyting verði fjármögnuð að stærstum hluta með hækkun á kostnaði hjá meginþorra notenda. Er þess krafist að staðið verði við 50 þúsund króna árlegt kostnaðarþak.

Enn fremur kemur fram að áformuð fjölgun hjúkrunarrýma fram til ársins 2022 nemi einungis rúmlega helmingnum af áætlaðri viðbótarþörf fyrir ný hjúkrunarrými til ársins 2020. Þá séu stuðningskerfi við ungt fólk ekki efld þrátt fyrir stöðuga fækkun barneigna undanfarin ár.

Bent er á að barna- og húsnæðisbótakerfin, sem séu mikilvæg tekjujöfnunartæki, séu áfram veik og fjölskyldum sem fái stuðning úr þessum kerfum muni að óbreyttu halda áfram að fækka. Vegna ástandsins á húsnæðismarkaði sé nauðsynlegt að auka stofnframlög til byggingar hagkvæmra leiguíbúða í almenna íbúðakerfinu úr 600 í 1.000 á ári næstu árin.

Fagnað er hins vegar áformaðri hækkun á hámarksgreiðslum til foreldra úr Fæðingarorlofssjóði í 600 þúsund krónur á mánuði í áföngum fram til ársins 2020 en hins vegar talið nauðsynlegt að tekjur upp að 300 þúsund krónum á mánuði skerðist ekki og að fæðingarorlof verði lengt úr 9 mánuðum í 12 í áföngum.

Þá standi ekki til „að gera löngu tímabærar breytingar á réttindum örorkulífeyrisþega í almannatryggingakerfinu til samræmis við þær breytingar sem gerðar hafa verið á réttindum ellilífeyrisþega, fyrr en á árinu 2019. Á meðan búa örorkulífeyrisþegar áfram við flókin, ógagnsæ réttindi almannatrygginga með krónu á móti krónu skerðingum á þann hóp sem verst stendur.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert