Búast má við truflunum á umferð

Hér má sjá hvar hlaupið fer fram.
Hér má sjá hvar hlaupið fer fram.

Víðavangshlaup ÍR fer fram í miðborg Reykjavíkur á milli 11 og 14 í dag. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að búast megi við truflunum á umferð í miðborginni en á meðfylgjandi korti má sjá hlaupaleiðina. 

„Við minnum fólk á að fara gætilega og muna eftir þolinmæðinni, enda má búast við truflunum vegna hlaupsins. Þá er ekkert annað að gera en að hvetja hlauparana áfram,“ segir lögreglan í færslu á Facebook-síðu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert