Magnea fær umhverfisverðlaun Ölfuss

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og Magnes Magnúsdóttir við verðlaunaafhendinguna …
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og Magnes Magnúsdóttir við verðlaunaafhendinguna í dag. Ljósmynd/aðsend

Magnea Magnúsdóttir, umhverfis- og landgræðslustjóri Orku náttúrunnar, hlýtur Umhverfisverðlaun Ölfuss 2017 fyrir brautryðjendaverkefni við uppgræðslu á Hellisheiði. Magnea tók við verðlaununum úr hendi Bjartar Ólafsdóttur umhverfisráðherra í dag, sumardaginn fyrsta, en viðstaddur var einnig Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.

„Verkefni Magneu felur í sér að nýttur er staðargróður til að græða upp svæði sem var raskað við virkjunarframkvæmdir á Hellisheiði eða önnur umsvif fyrr á tíð. Ávinningurinn er sá að ásýnd svæðanna verður svipuð því og áður en raskið varð og til þess nýtir Magnea gjarna mosa eða annar móagróður, sem setur mark sitt á umhverfið,“ að því er segir í tilkynningu frá Orku náttúrunnar.

Magnea þróaði aðferðir á meðan hún var í meistaranámi í Landbúnaðarháskólanum og gerði þá tilraunir á Hellisheiði. Að námi loku var hún ráðin landgræðslustjóri ON og hefur haldið áfram að þróa aðferðirnar sem felast meðal annars í því að safna fræi staðargróðursins og blanda það næringarefnum sem koma í veg fyrir að fræið fjúki.

Hólmfríður Sigurðardóttir, Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra, Magnea Magnúsdóttir og Sæunn Kolbrún …
Hólmfríður Sigurðardóttir, Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra, Magnea Magnúsdóttir og Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir ánægðar á svip við verðlaunafhendinguna. Ljósmynd/aðsend

„Súrmjólk hefur reynst öflugt íblöndunarefni í þessu skyni. Þá hefur Magnea gengist fyrir söfnun á mosaþembum þar sem framkvæmdir standa fyrir dyrum, geymslu þeirra í frystigámum og nýtt þær síðan til uppgræðslu að framkvæmdum loknum,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

„Hellisheiðaraðferðirnar“ hafa reynst árangursríkar

„Mér þykir afskaplega vænt um að verkefnið fái þessa viðurkenningu,“ segir Magnea við tilefnið. „Það er okkur hjá ON mikil hvatning, ekki bara til að ganga sem best frá heldur líka í öðrum umhverfisverkefnum sem við vinnum að.“

Hún segist vera þeirrar skoðunar að það skipti kannski enn meira máli að „Hellisheiðaraðferðirnar,“ eins og þær eru kallaðar, hafi reynst svo árangursríkar að aðrir séu farnir að beita þeim. „Það er frábært að fyrirtæki sem standa í umfangsmiklum framkvæmdum á borð við Vegagerðina og Landsvirkjun hafi í þessu fundið leiðir  til að bæta rask og draga þannig úr umhverfisáhrifum. Þannig nýtist þessi vinna sem allra flestum,“ bætir Magnea við.

Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra gerði þetta einmitt að umtalsefni í ávarpi sínu í dag að því er fram kemur í tilkynningunni og segir hún fréttir af þessum góða árangri hafa breiðst út. „Það er umhverfinu í hag að þeim sé beitt sem víðast og þannig stuðlað að því að viðhalda líffræðilegum fjölbreytileika íslensku flórunnar,“ sagði Björt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert