Umferðarslys á Vestfjörðum

Slysið varð um klukkan 22 í gærkvöldi.
Slysið varð um klukkan 22 í gærkvöldi. Kort/Map.is

Flutningabifreið fór út af veginum á Klettshálsi á sunnanverðum Vestfjörðum um klukkan 22 í gærkvöldi með þeim afleiðingum að tveir menn slösuðust. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vestfjörðum er ekki vitað með tildrög slyssins en sjúkrabílar og tækjabifreið frá slökkviliðinu á Búðardal fór á vettvang.

Ekki liggur fyrir á þessari stundu hversu mikil meiðsl mannanna eru sem voru fluttir á sjúkrahús.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert