77 milljarða króna framkvæmd

Í byggingunni á Hlíðarenda 4 verða 40 íbúðir, yfir helmingur …
Í byggingunni á Hlíðarenda 4 verða 40 íbúðir, yfir helmingur tveggja herbergja íbúðir. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Uppsteypa á fyrstu íbúðarbyggingunni sem rís á Hlíðarenda í Vatnsmýri er langt komin. Í byggingunni verða 40 íbúðir af ýmsum stærðum og gerðum. Jarðvegsvinna við lagningu gatna og lagna í hverfinu er einnig í fullum gangi. Áætlanir gera ráð fyrir að uppbygging á Hlíðarenda muni kosta um 77 milljarða króna.

Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar. 

Þar segir enn fremur, að á Hlíðarenda séu nú framkvæmdir á fullu skriði, uppsteypu sé að ljúka á fyrstu byggingunni, Hlíðarenda 4. Í byggingunni verði alls 40 íbúðir; 22 tveggja herbergja íbúðir, 15 þriggja herbergja og þrjár stærri íbúðir. Verið er að undirbúa framkvæmdir við uppbyggingu á lóð D á reitnum andspænis lóð B (þar sem nú er verið að byggja), en þar munu rísa byggingar með 140 íbúðum af öllum gerðum og stærðum. Framkvæmdir hefjast í sumar.

Jafnframt kemur fram, að á Hlíðarendasvæðinu verði 600 íbúðir samkvæmt samþykktu deiliskipulagi en þegar hafa verið gefin út framkvæmdaleyfi fyrir fyrsta áfanga byggðarinnar upp á 174 íbúðir. Að auki hyggjast Valsmenn byggja knatthús og fjölnota íþróttamannvirki á svæðinu. Talsvert af atvinnuhúsnæði verður á jarðhæðum í götuhæð á sumum reitanna.

„Hlíðarendi verður svokölluð randbyggð með evrópsku yfirbragði eins og fólk þekkir t.d. frá Kaupmannahöfn. Húsin standa við göturnar en á milli þeirra verða fallegir og skjólríkir inngarðar. Mikill meirihluti íbúðanna, eða 420 af 600, verða tveggja og þriggja herbergja. Húsin verða öll með torfþaki en notast verður við umhverfisvænar lausnir á öllu byggingarsvæðinu og öllu vatni sem fellur á svæðið skilað til friðlandsins í Vatnsmýri og Tjarnarinnar með grænum ofanvatnslausnum. Þá verður flokkuðu sorpi safnað í svokallaða djúpgáma.

Við aðalgötur á svæðinu verða hjólastígar beggja vegna götunnar. Lýsing verður enn fremur umhverfisvæn á svæðinu. Alark arkitektar hanna byggingarnar á reitum B og D auk íþróttamannvirkja Vals en þeir teiknuðu einnig deiliskipulag Hlíðarenda. Fleiri arkitektastofur munu koma að hönnun bygginga á svæðinu.

Á Hlíðarenda verða einnig hótel og er m.a. nýtt hótel í 17.500 fermetra byggingu í undirbúningi á reit H,“ segir í tilkynningu borgarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert