Svaf ölvunarsvefni við lögreglustöðina

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Ökumaður sem lagt hafði í bifreiðastæði við lögreglustöðina í Keflavík í gærkvöld reyndist sofa ölvunarsvefni undir stýri þegar lögreglumenn ætluðu að taka hann tali. Hann viðurkenndi akstur undir áhrifum áfengis og var færður inn á lögreglustöðina þar sem tekin var af honum skýrsla.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Þar segir enn fremur að ökumaðurinn hafi síðan verið látinn sofa úr sér. Hann gat ekki framvísað ökuskírteini og í bifreið hans fannst tveggja lítra flaska með meintum landa.

Annar ökumaður var handtekinn fyrr í vikunni vegna gruns um að hann æki undir áhrifum fíkniefna. Hann játaði neyslu á kannabis.

Loks var einn ökumaður kærður fyrir of hraðan akstur. Bifreið hans mældist á 129 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund, að því er segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert