Kjör Stefáns Vagns „mannleg mistök“

Þórunn segir þingmenn Framsóknar fagna því að Guðlaugur sé reiðubúinn …
Þórunn segir þingmenn Framsóknar fagna því að Guðlaugur sé reiðubúinn að sitja áfram í stjórn RÚV. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

„Þetta voru bara mannleg mistök sem að við hörmum,“ segir Þórunn Egilsdóttir, þinflokksformaður Framsóknarflokksins. „Þetta fór hér í gegn án þess að við áttuðum okkur á þessu.

Guðlaug­ur Sverris­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­formaður Rík­is­út­varps­ins, var í gær kjör­inn í stjórn RÚV sam­kvæmt til­nefn­ingu Fram­sókn­ar­flokks­ins degi eftir að Alþingi samþykkti kjör Stef­áns Vagns Stef­áns­son­ar í stjórnina samkvæmt tilefningu flokksins. En Stefán Vagn gat ekki tekið sæti í stjórn­inni vegna stöðu sinn­ar sem kjör­inn sveit­ar­stjórn­ar­full­trúi.

Þórunn segir þingmenn hafa verið mjög meðvitaða um mál Marðar Árnasonar, sem tók sæti á þingi sem varaþingmaður á sama tíma og hann átti sæti í stjórn RÚV árið 2015. „Við vorum vel meðvituð um það, en þetta bara fór fram hjá okkur því miður. Þetta voru bara mannleg mistök,“ segir hún.

„Við fögnum því bara að Guðlaugur sé tilbúinn að sitja áfram. Hann hefur staðið sig afskaplega vel og verið góður fulltrúi.“

Enn­frem­ur var Birna Þór­ar­ins­dótt­ir, fram­kvæmda­stýra Viðreisn­ar, kjör­in til setu í stjórn RÚV  í gær sam­kvæmt til­nefn­ingu Viðreisn­ar í stað Krist­ín­ar Maríu Birg­is­dótt­ur, for­seta bæj­ar­stjórn­ar Grinda­vík­ur. Líkt og í til­felli Stef­áns þá gat Krist­ín ekki tekið sæti í stjórn­inni stöðu sinnar vegna.

Mbl.is greindi einnig frá því árið 2015 að fjölmiðlanefndi myndi taka til skoðunar setu Krist­ins Dags Giss­ur­ar­son­ar, vara­bæj­ar­full­trúa Fram­sókn­ar­flokks­ins í Kópa­vogi, í stjórn RÚV eftir að Krist­inn sat fund bæj­ar­stjórn­ar Kópa­vogs þann 13. októ­ber það ár.

Í 9. grein laga um Rík­is­út­varpið seg­ir að kjörn­ir full­trú­ar til Alþing­is og sveit­ar­stjórna séu ekki kjörgeng­ir í stjórn Rík­is­út­varps­ins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert