Sjálfstæðisflokkur með 25,2% fylgi

Bjarni Benediktsson er formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra Íslands.
Bjarni Benediktsson er formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra Íslands. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samkvæmt könnun MMR sem fram fór dagana 11-26. apríl 2017 mælist Sjálfstæðisflokkurinn með mest fylgi íslenskra flokka. Litlar breytingar urðu milli mælinga á fylgi stærstu flokkanna, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna. Fylgi Sjálfstæðisflokks mældist nú 25,2% en það er 0,2 prósentustiga lækkun frá síðustu könnun sem lauk 13. mars 2017. Vinstri grænir mældust með næst mest fylgi eða 23,4% og er það eilítið lægra fylgi en í síðustu könnun þegar fylgið mældist 23,5%. Fylgi Pírata mældist nú 12,8% og er það lækkun um tæplega eitt prósentustig frá síðustu mælingu.

Stuðningur við ríkisstjórnina lækkaði milli mælinga. Alls kváðust 31,4% styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 34,5% í síðustu könnun.

Fylgi Framsóknarflokks mældist nú 11,1% og mældist 11,4% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,6% og mældist 8,8% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 5,0% og mældist 5,5% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 3,2% og mældist 3,7% í síðustu könnun.
Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 3,2% og mældist 5,0% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 5,4% samanlagt.

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 926 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 11. til 26. apríl 2017

Þrjár spurningar

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“.

Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var samkvæmt spurningum 1 og 2.

Samtals voru 80,3% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,2%), myndu skila auðu (6,6%), myndu ekki kjósa (2,1%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,9%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert