Hlaut 5 milljóna króna verðlaun

Unnur Anna Valdimarsdóttir.
Unnur Anna Valdimarsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Unnur Anna Valdimarsdóttir prófessor hlaut verðlaun úr Verðlaunasjóði í læknisfræði og skyldum greinum sem afhent voru á Vísindum á vordögum, árlegri uppskeruhátíð vísindastarfs á Landspítala í gær.

Árni Kristinsson og Þórður Harðarson, núverandi heiðursprófessorar við Háskóla Íslands og fyrrverandi yfirlæknar við Landspítala stofnuðu verðlaunasjóðinn árið 1986. Verðlaunin nema 5 milljónum króna og eru einhver stærstu verðlaun sem veitt eru fyrir vísindastörf hér á landi.

Áherslur Unnar beinast einkum að því að skilja og rannsaka frá ýmsum sjónarhornum hvernig sálrænt álag og áföll hafa áhrif á heilsu og sjúkdómsþróun. Ritaskrá hennar er mikil að vöxtum og hafa niðurstöðurnar birst í ýmsum virtustu tímritum heims á viðkomandi fræðasviðum. Skráin ber skýrlega með sér að hún hefur náð frábærum árangri í vísindarannsóknum.

Unnur Anna Valdimarsdóttir lauk BA-prófi í sálfræði við Háskóla Íslands 1996 og doktorsprófi í klínískri faraldsfræði við Karólínsku stofnunina í Stokkhólmi 2003. Hún starfaði þar til ársins 2007 en síðan hefur hún verið forstöðumaður Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands, fyrst sem dósent en sem prófessor frá árinu 2012. Undir hennar stjórn hefur nám í lýðheilsuvísindum eflst mjög. Frá árinu 2013 hefur Unnur verið varaforseti læknadeildar Háskóla Íslands.

Unnur hefur hlotið fjölda stórra rannsóknarstyrkja, meðal annars frá evrópska vísindaráðinu og fleirum til rannsókna á samspili erfða og heilsufarslegra afleiðinga alvarlegra sálrænna áfalla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert