Lífslíkur með þeim hæstu í Evrópu

Lífslíkur Íslendinga eru með þeim hæstu í Evrópu og ungbarnadauði í Evrópu er lægstur á Íslandi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands. Árið 2016 var meðalævilengd karla 80,7 ár og meðalævilengd kvenna 83,7 ár á Íslandi.

Meðalævilengd sýnir hve mörg æviár einstaklingur á að meðaltali ólifuð við fæðingu, ef miðað er við aldursbundna dánartíðni mannfjöldans. Aldursbundin dánartíðni hefur farið lækkandi á undanförnum áratugum og má því vænta þess að fólk lifi að jafnaði lengur en reiknuð meðalævilengd segir til um.

Frá árinu 1986 hafa karlar bætt við sig rúmlega sex árum og konur rúmlega fjórum árum í meðalævilengd.

Sé horft á meðaltal tíu ára, 2006-2015, var meðalævi karla á Íslandi 80,4 og í Sviss 80,2 ár og skipuðu þeir fyrsta og annað sætið meðal Evrópulanda. Þeim var fylgt eftir af körlum í Liechtenstein (79,9 ár), Svíþjóð (79,7) og Ítalíu (79,6), á Spáni og í Noregi (79,2 ár). Styst er meðalævilengd evrópskra karla í Moldavíu (65,6), Úkraínu (64,3) og Rússlandi (62,5).

Á sama tíu ára tímabili, 2006-2015, var meðalævi kvenna á Spáni og í Frakklandi 85,3 ár og skipuðu þær fyrsta sætið í Evrópu. Þeim er fylgt eftir af konum í Sviss (84,9), Ítalíu (84,7), Liechtenstein (84,1) og á Íslandi (83,8). Meðalævilengd kvenna er styst í Úkraínu (75), Rússlandi (74,6) og Moldavíu (73,6).


Árið 2016 létust 2.309 einstaklingar sem búsettir voru á Íslandi, 1.197 karlar og 1.112 konur. Dánartíðni var 6,9 látnir á hverja 1.000 íbúa og ungbarnadauði var 0,7 barn af hverjum 1.000 lifandi fæddum árið 2016.

Á tíu ára tímabili, 2006-2015, var meðalungbarnadauði á Íslandi 1,8 af 1.000 lifandi fæddum. Hvergi í Evrópu var ungbarnadauði jafnlágur og hér. Meðalungbarnadauði var 2 í San Marino og Andorra, 2,4 í Finnlandi, 2,5 í Slóveníu og Svíþjóð. Tíðastur var ungbarnadauði í Tyrklandi, 13,8 af hverjum 1.000 lifandi fæddum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert