Með höfuðáverka eftir heimilisofbeldi

mbl.is/G.Rúnar

Meint fórnarlamb heimilisofbeldis í Grafarvogi hlaut höfuðáverka eftir árás á heimili sínu um miðnætti. Sá sem varð fyrir heimilisofbeldinu neitaði að fara á bráðamóttöku til aðhlynningar að sögn lögreglu. Sá sem grunaður er um ofbeldið var farinn af heimilinu þegar lögregla kom á vettvang og er talið að hann hafi farið akandi á brott þrátt fyrir að vera talsvert ölvaður. Rannsókn málsins er í höndum lögreglu. 

Skömmu áður hafði verið tilkynnt um heimiliserjur í heimahúsi í Hafnarfirði. Þegar lögregla kom á vettvang reyndist um minni háttar ágreining að ræða og ekki kom til neinna átaka. 

Lögregla stöðvaði för bifreiðar um tvöleytið í nótt og reyndist ökumaður undir áhrifum áfengis og fíkniefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert