Miðillinn sagði þeim að kaupa miða

Þetta var sannspár miðill sem ungi maðurinn leitaði til.
Þetta var sannspár miðill sem ungi maðurinn leitaði til. mbl.is/Golli

Ungur fjölskyldufaðir á Norðurlandi fór að ráðleggingum miðils og keypti happdrættismiða hjá Háskólanum í lok síðasta árs. Í vikunni kom 50 milljóna króna vinningur á miðann. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá HHÍ.

„Ung fjölskylda á Norðurlandi varð 50 milljónum króna ríkari eftir útdráttinn hjá Happdrætti Háskóla Íslands fyrr í vikunni​. Fjölskyldufaðirinn sem fékk símtalið gleðilega frá happdrættinu á miðvikudagskvöldið kiknaði í hnjánum við fréttirnar og þurfti að fá sér sæti á gólfinu til að meðtaka þær.

Að sjálfsögðu varð hann gríðarlega kátur en gat um leið deilt því að honum hefði verið ráðlagt af miðli að kaupa sér happdrættismiða hjá Háskólanum í lok síðasta árs. Sagði miðillinn að hann yrði heppinn í peningamálum á árinu 2017 og sú varð aldeilis raunin. Hafði fjölskyldan heppna raunar spilað í happdrættinu um árabil en ekki með vinningsnúmerinu,“ segir í tilkynningu frá HHÍ.

Eftir þessar ráðleggingar setti fjölskyldufaðirinn sig í samband við Fjölumboðið á Akureyri og keypti vinningsmiðann og annan miða til.

Unga fjölskyldan ætlar að nota milljónirnar fimmtíu til þess að greiða niður skuldir og eiga sjóð til framtíðar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert