Guðni sendi Macron heillaóskir

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, hefur sent nýkjörnum forseta Frakklands, Emmanuel Macron, heillaóskir í tilefni af embættistöku hans.

Í kveðju sinni minnir forseti á þau miklu verkefni sem blasa við í Frakklandi og víðar í Evrópu, áskoranir og hættur sem og nauðsyn þess að verja grundvallarmannréttindi á borð við málfrelsi, trúfrelsi, jafnrétti og öryggi. Íslendingar óski hinum nýja forseta velfarnaðar í vandasömu starfi.

Jafnframt víkur forseti að margþættum og góðum samskiptum Frakka og Íslendinga, sem raunar hafi staðið í margar aldir, og að sameiginlegri sýn í umhverfismálum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert