Í fangaklefa eftir heimilisofbeldi

Einn gistir fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna heimilisofbeldis og líkamsárásar í Grafarvogi. Maki mannsins þurfti að leita læknisaðstoðar á slysadeild vegna áverka á hendi eftir árásarmanninn.

Tveir gista fangaklefa á lögreglustöðinni á Akureyri vegna ölvunar í nótt. Hvorugur þeirra braut af sér en þeir fengu að sofa úr sér ölvunina á stöðinni, að sögn varðstjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert