Fjórir milljarðar vegna olíuleitar

Olíuborpallur.
Olíuborpallur. AFP

Kostnaður sem leyfishafar til rannsókna og vinnslu kolvetnis hafa þegar lagt í rannsóknir vegna olíuleitar á Drekasvæðinu er gróft áætlaður fjórir milljarðar króna, samkvæmt mati Orkustofnunar sem hefur umsjón með veitingu leyfa samkvæmt kolvetnislögum.

Þetta kemur fram í svari ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn Halldóru Mogensen, þingmanns Pírata, um leyfi til olíuleitar.

Ekki hefur verið lagt mat á bótakröfur vegna afturköllunar leyfa, ef til þess kæmi.

Eitt sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolefnis er í gildi í dag. Handahafar þess eru CNOOC Iceland ehf., Eykon Energy ehf. og Petoro Iceland ehf. Gildistími leyfisins er tólf ár og gildir því til 22. janúar 2016, að því er kemur fram í svarinu.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarmála.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarmála. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ekki skuldbundið sig vegna rannsóknarholu

Leyfistímabilið er áfangaskipt og lýkur fyrsta áfanganum í janúar á næsta ári. Fyrir lok hans þarf leyfishafinn að framkvæmda rannsóknir sem er lýst í 2. áfanga rannsóknaráætlunar leyfisins (þrívíðar endurkastsmælingar) eða að öðrum kosti að gefa leyfið eftir. Að loknum öðrum áfanga, fyrir 22. janúar 2022, þarf leyfishafi að skuldbinda sig til að bora eina rannsóknarholu. Það hefur hann ekki enn gert, samkvæmt svarinu.

Aðeins er hægt að veita sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolefnis í útboðum. Tvö útboð hafa þegar farið fram og ekki hefur verið tekin ákvörðun um nýtt útboð að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert