Rafmagnslaust víða á Austurlandi

Egilsstaðir. Rafmagnslaust er frá Kirkjubæjarklaustri að Vopnafirði.
Egilsstaðir. Rafmagnslaust er frá Kirkjubæjarklaustri að Vopnafirði. mbl.is/Sigurður Bogi

Rafmagnslaust er nú  á stórum hluta Austurlands, en í tilkynningu á vef Landsnets segir að víðtæk truflun sé nú í flutningskerfi Landsnets á Austurlandi.

Lesandi sem hafði samband við  mbl.is segir rafmagnsleysið að minnsta kosti ná yfir Egilsstaði, Eskifjörð og Seyðisfjörð.

Í fréttatilkynningu á vef Landsnets segir að rafmagnslaust sé frá Kirkjubæjaklaustri, Höfn í Hornafirði, Egilsstöðum, Austfjörðum og nágrenni. Unnið sé að því að greina bilunina og koma rafmagni á aftur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert