Hugmyndir uppi um að stytta iðnnám í þrjú ár

Frá Íslandsmóti iðn- og verkgreina.
Frá Íslandsmóti iðn- og verkgreina. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Nú er búið að stytta nám til stúdentsprófs í þrjú ár og það gæti hafa veikt samkeppnisstöðu iðnnámsins,“ segir Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, sviðsstjóri hjá Samtökum iðnaðarins.

Hún mætti á fund hjá Landssambandi bakarameistara þar sem hún viðraði nokkur atriði sem hún telur að þurfi að skoða varðandi iðnnám. Til stendur að eiga fundi með öllum meistarafélögum iðngreina á næstu dögum, þar sem hvert samband um sig getur verið með sérþarfir vegna eðlis iðnarinnar.

„Iðnnám hefur átt undir högg að sækja undanfarin ár, of fáir sækja um nám í iðngreinum,“ segir Ingibjörg jafnframt, afar brýnt sé að fleiri fari í iðnnám.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert