Kópavogur og Specialisterne í samstarf

Frá vinstri: Bjarni Torfi Álfþórsson frá Specialisterne, Guðlaug Ósk Gísladóttir, …
Frá vinstri: Bjarni Torfi Álfþórsson frá Specialisterne, Guðlaug Ósk Gísladóttir, velferðarsviði Kópavogsbæjar, Theodóra S. Þorsteinsdóttir, formaður bæjarráðs, og Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs. Ljósmynd/Aðsend

Kópavogsbær og Specialisterne á Íslandi hafa gert með sér samkomulag til átta mánaða.

Specialisterne munu á tímabilinu veita fötluðum atvinnuleitendum innan Kópavogsbæjar einstaklingsmiðaða starfsþjálfun auk starfsmats. Markmiðið er að auka atvinnumöguleika fólks á almennum vinnumarkaði. Hér er um að ræða viðbót við önnur þau úrræði sem í boði eru innan sveitarfélagsins, að því er segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ.

Specialisterne er sjálfseignarstofnun sem stofnuð var í upphafi árs 2010 af Umsjónarfélagi einhverfra og sjö einstaklingum þar að auki. Félagið hefur það að markmiði að veita sérhæfða  þjónustu sem snýr að atvinnustuðningi við einstaklinga á einhverfurófi og með því stuðla að jöfnum tækifærum fólks á atvinnumarkaði.

Samtökin leggja til húsnæði og sérhæfða starfsmenn, sjá um að tryggja gæði í starfi og að verkefnið skili árangri fyrir atvinnuleitendur.

„Kópavogsbær bindur vonir við þennan samning sem líklegur er til að skila fleira fólki út á vinnumarkaðinn,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert