Óskar eftir umsögnum um breytt lög

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gyfladóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gyfladóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi um breytingu á lögum um skipan ferðamála.

„Helstu breytingar frumvarpsins fela í sér breytta tilgangsgrein laganna, hlutverk Ferðamálastofu er uppfært, breytta skipan Ferðamálaráðs, breytingar á skilyrðum leyfisveitinga, nýmæli um skyldu ferðaþjónustuaðila til að setja sér öryggisáætlanir og heimild Ferðamálastofu til að leggja dagsektir á aðila sem brjóta gegn ákvörðunum stofnunarinnar,“ segir í tilkynningu.

Frumvarpið er liður í yfirferð og endurskoðun ráðuneytisins á stjórnsýslu ferðamála og starfsskilyrðum aðila í ferðaþjónustu. Frumvarpið er fyrsta skrefið í þeirri yfirferð og því verða lagðar til afmarkaðar breytingar að svo stöddu.

„Áfram verður unnið að endurskoðun málaflokksins í ljósi mikils fjölda ferðamanna og vaxandi mikilvægi málaflokksins í atvinnulífinu. Frekari breytingar eru því á döfinni á næstunni sem fela m.a. í sér innleiðingu á nýrri tilskipun um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun,“ segir í tilkynningunni.

Frestur til að skila umsögnum um frumvarpsdrögin er til og með 25. maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert