Þúsund manns í Dimmuborgum

Dimmuborgir eru vinsæll áfangastaður ferðamanna.
Dimmuborgir eru vinsæll áfangastaður ferðamanna. mbl.is/Golli

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins, Celebrity Eclipse, kom til hafnar á Akureyri um síðustu helgi og með því tæplega 3.000 farþegar. Fór mikill fjöldi farþeganna austur í Mývatnssveit með rútum meðan skipið lá við bryggju.

Talning ferðamanna við eina vinsælustu náttúruperlu Mývatnssveitar gefur til kynna að skipakomunum fylgi aukaálag á viðkvæm svæði, að því er fram kemur í frétt á
heimasíðu Umhverfisstofnunar.

Í apríl voru settir upp teljarar til að mæla umferð gangandi manna. Samkvæmt teljara í Dimmuborgum varð aðsóknarsprenging þar sama dag og farþegarnir úr skemmtiferðaskipinu voru á faraldsfæti. Um 1.000 gestir sóttu Dimmuborgir um hádegisbilið síðastliðinn laugardag samkvæmt teljaranum, margföld sú umferð sem er þar að jafnaði dag hvern á þessum árstíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert