Dýrkeyptur hraðakstur

mbl.is/Hjörtur

Lögreglan á Suðurnesjum kærði allmarga ökumenn fyrir of hraðan akstur í umdæmi sínu í vikunni. Sá sem ók hraðast var mældur á 147 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. 

Brotið reyndist ökumanninum dýrkeypt en hans bíður 130 þúsund króna sekt, svipting ökuleyfis í einn mánuð og þrír refsipunktar í ökuferilskrá.

Einnig voru nokkrir ökumenn staðnir að því að virða ekki gangbrautarrétt, tala í síma án handfrjáls búnaðar eða aka án þess að spenna öryggisbelti. Þá ók einn sviptur ökuréttindum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert