Íslendingar á toppi heimsins

F.v. Hallgrímur Magnússon, Björn Ólafsson og Einar K. Stefánsson á …
F.v. Hallgrímur Magnússon, Björn Ólafsson og Einar K. Stefánsson á Everest-tindi. Everest-fararnir færðu síðan forseta Íslands fánann og er hann geymdur á Bessastöðum. Ljósmynd/Úr einkasafni

Tuttugu ár eru á morgun frá því að Íslendingar stóðu fyrst á tindi Everest-fjalls 21. maí 1997. Fjallgöngukapparnir Björn Ólafsson, Einar K. Stefánsson og Hallgrímur Magnússon unnu það afrek.

Haraldur Örn Ólafsson gekk næstur Íslendinga á þetta hæsta fjall heims og stóð á tindi Everest 16. maí 2002. Það var sjöundi tindurinn af hæstu tindum heimsálfanna sem Haraldur sigraðist á. Auk þess hafði hann gengið bæði á suður- og norðurpólinn og þvert yfir Grænlandsjökul auk annarra afreka. Haraldur var með fyrstu mönnum til að ganga á báða pólana og á Everest.

Tveir Íslendingar gengu á Everest vorið 2013. Ingólfur Geir Gissurarson náði tindinum 21. maí. Hann stóð þá á fimmtugu og var elsti Íslendingurinn og eini íslenski afinn sem hafði gengið á hæsta fjall heims.

Leifur Örn Svavarsson náði tindi Everest 23. maí. Hann er eini Íslendingurinn sem hefur farið norðurleiðina á Everest, en hún er tæknilega erfiðari en suðurleiðin. Leifur Örn hefur einnig komið á báða pólana.

Sex Íslendingar hafa komist á topp Everest-fjalls.
Sex Íslendingar hafa komist á topp Everest-fjalls. Ljósmynd/Wikimedia Commons/Rdevany

Stefna á tindinn

Vilborg Arna Gissurardóttir er á leiðinni á Everest þegar þetta var skrifað. Það er síðasti tindurinn sem hún þarf að sigra til að hafa gengið á tindana sjö, hæstu fjöll heimsálfanna.Vilborg ætlaði á Everest vorið 2014 en þá féll stórt snjóflóð á heimamenn sem voru á leið um Khumbu-ísfallið. Sextán fórust og í kjölfarið hættu flestir fjallamenn við að klífa fjallið, þeirra á meðal Vilborg. Hún náði tindi Cho Oyu, sem er sjötta hæsta fjall heims og 8.201 metri, 2. október 2014. Vorið 2015 ætlaði Vilborg aftur að reyna við Everest. 25. apríl reið harður jarðskjálfti, 7,9 stig, yfir Nepal. Snjóflóð féll á grunnbúðir Everest og fórust 33 manns. Hún varð einnig að hætta við þá.

Vilborg gekk ein síns liðs á suðurpólinn og náði honum 18. janúar 2013. Árið 2014 varð hún fyrsta og eina konan sem hafði bæði klifið 8.000 metra tind ein síns liðs og gengið ein á pól.

Ingólfur Ragnar Axelsson ætlaði einnig að fara á Everest vorin 2014 og 2015 en varð frá að hverfa af sömu ástæðum og Vilborg Arna. Hann kvaðst stefna að því að reyna aftur við Everest á næsta ári.

Nýsjálendingurinn Edmund Hillary og sjerpinn Tenzing Norgay urðu fyrstir til að sigra Everest, svo staðfest sé, 29. maí 1953. Þá höfðu verið gerðar margar tilraunir til að komast á tindinn. Hillary gekk fyrstur manna á báða pólana og á Everest.

Þar sem enginn kemur til bjargar

Everest-fararnir þrír, Björn Ólafsson, Einar K. Stefánsson og Hallgrímur Magnússon, munu ekki halda upp á það saman á morgun að tuttugu ár eru liðin frá því að þeir sigruðu Everest.

„Það lítur út fyrir að ég verði bara einn að fagna hér heima,“ sagði Björn. „Einar og Hallgrímur, félagar mínir, eru þessa dagana að reyna að sigla eftir Grænlandsjökli frá Ittoqqortoormiit (Scoresbysundi) til Tasiilaq, um 1.200 km leið, og gengur sæmilega. Þeir byrjuðu norðan við Scoresbysund, fóru þvert yfir það og upp á fjöllin þar fyrir sunnan. Þeir eru fimm saman og nota flugdreka til að draga sig á skíðum.“

Björn Ólafsson hefði ekki viljað missa af háfjallamennskunni.
Björn Ólafsson hefði ekki viljað missa af háfjallamennskunni. mbl.is/Golli

Björn sagðist oft hugsa til ferðarinnar á Everest. „Það er með þetta eins og allt sem reynir mikið á mann að það verður alltaf betra í minningunni. Maður man eftir góðu hlutunum og gleymir þeim erfiðu,“ sagði Björn. Hann kvaðst nýlega hafa lesið aftur bókina „Everest: Íslendingar á hæsta fjalli heims“ eftir Hörð Magnússon, fylgdarmann þeirra félaga. Þar er saga leiðangursins rakin. „Þá rifjuðust upp ýmsir erfiðleikar sem ég var búinn að gleyma. Heilt yfir var þetta frábært! Ég tala nú ekki um hvað þetta gekk vel og að við gátum allir verið á toppnum á sama tíma. Það var ekki sjálfgefið og leit ekki út fyrir það á tímabili.“

Háskalegt ferðalag

Björn sagði að nokkrum sinnum hefði hurð skollið nærri hælum. „Samferðarmenn okkar lentu í miklum vandræðum og voru nær dauða en lífi. Það gekk ýmislegt á eins og viðbúið er í svona mikilli hæð. Ef þú getur ekki bjargað sjálfum þér er enginn annar sem getur gert það. Það er bara þannig.“

Meira en 280 hafa dáið við að klífa Everest svo vitað sé á 20. og 21. öld. Margir fórust í snjóflóðum eða íshruni, hröpuðu, dóu úr vosbúð eða misstu lífið vegna einhvers heilsubrests í svo mikilli hæð. Björn sagði að reynsluleysi gæti verið afdrifaríkt á hæstu tindum heimsins. Það dygði ekki alltaf að vera bara í góðu formi.

Björn kláraði sjö tinda áskorunina, kleif hæstu tinda allra heimsálfa, og hefur klifið mörg önnur há fjöll. Hann sagði að glíman við hæstu tinda heimsins hefði tvímælalaust mótað sig.

„Háfjallamennska er mjög gefandi og skemmtileg. En þetta tekur mikinn tíma og reynir mikið á. Þetta er lífsreynsla sem ég hefði ekki viljað missa af,“ sagði Björn. En eru aðrar áskoranir í lífinu lítilvægar miðað við Everest?

„Allt sem maður gerir getur verið áskorun, allt eftir því hvernig maður lítur á hlutina. Ég hef klifið mörg há fjöll eftir Everest og sum hafa verið mjög erfið, miklu erfiðari en maður gerði ráð fyrir. Það er ekki bara hæðin sem skiptir máli heldur einnig aðstæður, veður og umhverfi.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert