Óbreytt viðbúnaðarstig hér á landi

Lögreglumenn í Manchester.
Lögreglumenn í Manchester. AFP

Viðbúnaðarstig vegna hryðjuverkaógnar verður ekki hækkað hér á landi í kjölfar sjálfsvígsárásarinnar í Manchester í gærkvöldi. 22 létu lífið en árásin var gerð á tónleikum Ariönu Grande.

„Við fórum yfir þetta mál í morgun, allir helstu sérfræðingar embættis ríkislögreglustjóra,“ segir Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri í samtali við mbl.is. „Við höfum fengið ákveðnar upplýsingar frá lögreglunni í Bretlandi og okkar niðurstaða er sú að halda óbreyttu stigi hér heima.

Hryðju­verka­sam­tök­in Ríki íslams lýstu yfir ábyrgð á árás­inni í morg­un.

Spurður hvort unnið væri eftir sérstakri áætlun ef árás yrði gerð hér á landi segir Haraldur að svo sé. Lögreglan er með sérstakt viðbúnaðarskipulag og þá hefur þjálfun lögreglumanna verið aukin undanfarin þrjú ár.

Við vinnum eftir okkar áætlunum. Liður í þeim er að kalla saman þennan hóp og fara yfir málin og meta stöðuna. Eins og staðan er núna var það mat okkar að það þyrfti ekki að hækka viðbúnað á þessu stigi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert