Fimmtán taldir hæfastir

Húsnæði Landsréttar í Kópavogi.
Húsnæði Landsréttar í Kópavogi. mbl.is/Hjörtur

Dómnefnd um umsækjendur um embætti 15 dómara við Landsrétt hefur skilað dómsmálaráðherra umsögn sinni. Hefur dómnefndin lýst fimmtán dómara hæfasta af þeim 34 umsækjendum sem sóttu um embættin og héldu umsóknum sínum til streitu. Þeir eru:

Aðalsteinn E. Jónasson, Ástráður Haraldsson, Davíð Þór Björgvinsson, Eiríkur Jónsson, Hervör Þorvaldsdóttir, Ingveldur Einarsdóttir, Jóhannes Rúnar Jóhannsson, Jóhannes Sigurðsson, Jón Höskuldsson, Kristbjörg Stephensen, Oddný Mjöll Arnardóttir, Ragnheiður Harðardóttir, Sigurður Tómas Magnússon, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson og Þorgeir Ingi Njálsson.

Embættin voru auglýst laus til umsóknar 10. febrúar með umsóknarfresti til 28. febrúar. Alls sóttu 37 um embættin en þrír drógu umsóknir sínar til baka. Dómnefndina skipa Gunnlaugur Claessen, Guðrún Björk Bjarnadóttir, Halldór Halldórsson, Ingibjörg Pálmadóttir og Valtýr Sigurðsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert