20 ábendingar um lyktarmengun

Kísilmálmverksmiðja United Silicon í Helguvík.
Kísilmálmverksmiðja United Silicon í Helguvík. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Um 20 ábendingar hafa borist Umhverfisstofnun síðustu daga vegna lyktarmengunar frá kísilmálmverksmiðju United Silicon í Helguvík. Ljósbogaofn verksmiðjunnar var gangsettur á sunnudag en ofninn hefur verið úti frá því klukkan hálfátta í gærkvöldi vegna skautbrots.

Ekki búist við svona mikilli lyktarmengun

„Við vorum seinast þarna í dag þegar við fórum í eftirlit eftir ábendingar. Við staðfestum að það væri lykt á svæðinu sem var að berast þarna frá verksmiðjunni,“ segir Einar Halldórsson, verkfræðingur hjá Umhverfisstofnun.

Segir hann að viðbúið hafi verið að skautið myndi brotna, en þar sem það hafi gerst þurfi að keyra ofninn upp aftur sem geti tekið allt frá 10 klukkustundum upp í tvo daga. Hefur ofninn enn ekki verið gangsettur á ný.

„Það var alltaf vitað að þeir myndu lenda í vandræðum því ofninn var búinn að vera svo lengi úti,“ segir Einar en bætir við að ekki hafi verið búist við svona mikilli lyktarmengun. Mælistöðvar til að fylgjast með loftgæðum hafa verið sett­ar upp bæði í verk­smiðjunni og í kring­um hana, auk þess sem einni slíkri hef­ur verið komið upp á heim­ili í Reykja­nes­bæ þar sem fólk hef­ur fundið lykt sem það seg­ir koma frá verk­smiðjunni.

„Ekki hægt að hafa þetta svona lengi áfram“

Að sögn Einars verður náið fylgst með á næstu dögunum og ábendingum svarað. Hafa ábendingarnar síðustu daga aðallega borist frá fólki á golfvellinum og Mánagrund, þ.e. austan og norðvestan megin við verksmiðjuna. Berst lyktin þangað með suðaustan-, sunnan- og austanátt.

Einar segir lyktina stafa frá viði sem er brenndur í ofninum, en hugsanleg lausn geti verið að minnka viðinn í blöndunni og auka kol til að draga úr lyktinni.

En hvernig er framhaldið? „Það er ljóst að það er ekki hægt að hafa þetta svona lengi áfram,“ segir Einar. „Endurbæturnar sem hafa verið gerðar miðast við að koma ofninum í fulla virkni og þá mun koma í ljós hvort það hafi virkað. Ofninn er ekki búinn að komast í fulla virkni síðan á sunnudag svo það ætti að koma í ljós eftir það hvort endurbæturnar hafi virkað.“

Fylgjast með gangi mála

Úrbæt­ur hafa verið gerðar á ofn­in­um auk ým­issa annarra fram­kvæmda sem farið var í, að sögn United Silicon hf., sem fór meðal ann­ars eft­ir út­tekt norska ráðgjaf­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Multikonsult. Fyr­ir­tækið mun halda áfram að starfa með United Silicon hf. á meðan ofn­inn er að kom­ast á full af­köst.

Um­hverf­is­stofn­un fylg­ist náið með gangi mála og met­ur ár­ang­ur úr­bót­anna. Fyr­ir­tækið þarf meðal ann­ars að senda dag­lega inn af­rit sem sýn­ir afl ofns­ins, sýni verða tek­in til grein­ing­ar auk þess sem fylgst er með kvört­un­um um lykt­ar­meng­un. 

Ofn­inn hef­ur ekki náð fullri virkni frá því að eld­ur kom upp í kís­il­málm­verk­smiðjunni þriðju­dag­inn 18. apríl. Viku síðar sendi Um­hverf­is­stofn­un frá sér til­kynn­ingu um að stofn­un­in hefði stöðvað rekst­ur verk­smiðjunn­ar vegna ít­rekaðrar lykt­ar­meng­un­ar og að ofn­inn yrði ekki ræst­ur aft­ur nema að gefnu leyfi og í sam­ráði við stofn­un­ina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert