Sundabraut vekur áhuga fjárfesta

Ytri leið Sundabrautar mun liggja frá Holtagörðum í Gufunesið.
Ytri leið Sundabrautar mun liggja frá Holtagörðum í Gufunesið.

Nokkrir fjárfestar hafa leitað upplýsinga hjá Vegagerðinni og ráðuneytinu um Sundabraut með það í huga að leggja brautina gegn endurgreiðslu. Athuganir þessar hafa ekki leitt til frekari samningaviðræðna enn sem komið er.

Þetta kemur fram í svari Jóns Gunnarssonar samgönguráðherra við fyrirspurn frá Bessí Jóhannsdóttur, varaþingmanni Sjálfstæðisflokksins, um Sundabraut.

Samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið hefur aflað sér er hér um að ræða bæði innlenda og erlenda fjárfesta, m.a. sjóði.

Leitað leiða til að fjármagna brautina með einkaaðilum

Fram kemur í svari ráðherra að í tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2015–2026, sem lögð var fyrir Alþingi á 145. löggjafarþingi 2015–2016, er ekki lagt til að veitt verði fé til Sundabrautar. Þess í stað kemur fram að „leitað verði leiða til að fjármagna Sundabraut í samstarfi við einkaaðila“.

Vegagerðin og Reykjavíkurborg hafa allt frá árinu 1995 lagt mikla vinnu í að rannsaka mögulega kosti á legu Sundabrautar. Því miður hafi ekki náðst sameiginleg niðurstaða um ákveðinn kost. Vegagerðin hafi lagt áherslu á svokallaða innri leið sem liggur af Sæbraut um Kleppsmýrarveg. Reykjavíkurborg hafi hins vegar með samþykkt aðalskipulagsins fyrir árin 2010–2030 hafnað þeirri leið en haldið opinni svokallaðri ytri leið sem liggur af Sæbraut norðan Holtagarða. Kostnaður við ytri leið sé gróft áætlaður um 10 milljörðum kr. hærri en við innri leið. Sá kostnaður skýrist fyrst og fremst af því hve stór hluti Sundahafnar er sunnan þeirrar leiðar. Til að siglingar skipa raskist ekki þurfi mjög háar brýr eða aðrar mjög dýrar lausnir, svo sem opnanlegar brýr. sisi@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert