Lögreglan með viðbúnað vegna landsleiks

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Búist er við mikilli umferð vegna landsleiks Íslendinga og Króata á Laugardalsvelli í kvöld klukkan 18.45 og er knattspyrnuáhugamönnum bent á að leggja tímanlega af stað og sýna þolinmæði að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Svokallað Fan Zone verður opnað tveimur klukkustundum fyrir leik á bílastæðinu fyrir framan völlinn, en þar verður jafnframt hægt að horfa á leikinn á risaskjá. Lögreglan minnir á að leggja löglega, en veðurútlitið fyrir leikinn er frábært og því ætti engan að muna um að leggja smáspöl frá leikvanginum og ganga í fáeinar mínútur að vellinum.

Þá bendir lögreglan á að hægt sé að nýta sér ferðir strætó af þessu tilefni. Uppselt er á leikinn og verða áhorfendur á Laugardalsvellinum tæplega 10 þúsund, auk fjölmargra annarra sem munu væntanlega horfa á leikinn á risaskjá fyrir utan völlinn. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður með nokkurn viðbúnað vegna leiksins að því er fram kemur í tilkynningunni.

Sérstök athygli er vakin á því að miðabrask er ólöglegt, líkt og Knattspyrnusambandið hefur þegar vakið máls á, og á því verður tekið í dag ef upp um það kemst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert