Stýrivextir lækkaðir um 0,25%

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti bankans um 0,25%. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 4,5%. Þetta var tilkynnt rétt í þessu.

Fram kemur í rökstuðningi að horfur séu á hröðum hagvexti í ár líkt og árin á undan. „Útlitið hefur lítið breyst frá síðustu spá Seðlabankans og hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi var í meginatriðum í samræmi við hana. Vöxturinn er sem fyrr einkum drifinn af örum vexti ferðaþjónustu og einkaneyslu auk þess sem útlit er fyrir töluverða slökun í aðhaldi opinberra fjármála í ár.“

Verðbólga sé enn áþekk því sem verið hafi undanfarið hálft ár en undirliggjandi verðbólga virðist hafa farið minnkandi undanfarna mánuði. „Þá hafa verðbólguvæntingar til bæði skamms og langs tíma lækkað áfram frá síðasta fundi peningastefnunefndar og raunvextir bankans hækkað. Gagnstæðir kraftar hafa sem fyrr áhrif á verðbólguhorfur, þar sem hækkun gengis krónunnar og lítil alþjóðleg verðbólga vega á móti verðbólguþrýstingi af innlendum rótum. Hefur bilið á milli verðþróunar innlendra þátta, einkum húsnæðiskostnaðar, og erlendra þátta aukist töluvert undanfarna mánuði.“

Hins vegar kalli skýr merki um spennu í þjóðarbúskapnum á peningalegt aðhald svo að tryggja megi verðstöðugleika til meðallangs tíma. „Traustari kjölfesta verðbólguvæntinga við verðbólgumarkmiðið og hækkun gengis krónunnar hafa gert peningastefnunefnd mögulegt að ná lögboðnu markmiði um verðstöðugleika með lægri vöxtum en ella. Aðhaldsstig peningastefnunnar á komandi misserum mun ráðast af framvindu efnahagsmála og annarri hagstjórn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert