Hvetja ferðamenn til ábyrgðar

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, (önnur frá vinstri) ýtti …
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, (önnur frá vinstri) ýtti verkefninu úr vör með því að samþykkja loforðið.

Sumarherferð Inspired by Iceland sem hvetur ferðamenn til þess að ferðast um Ísland á ábyrgan hátt hófst í dag. Herferðin snýst um að ferðamenn samþykkja loforð sem kallast „The Icelandic Pledge" og stuðlar betri hegðun ferðamanna er þeir ferðast um landið. 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hrinti verkefninu af stað í dag með því að samþykkja loforðið við Landnámssetrið í Borgarnesi. Ásamt henni munu aðilar frá Samtökum ferðaþjónustunnar, Íslandsstofu og Landsbjörg samþykkja loforðið. Þetta kemur fram í tilkynningu Íslandsstofu. 

Hér má sjá þau loforð sem ferðamenn eru hvattir til …
Hér má sjá þau loforð sem ferðamenn eru hvattir til þess að samþykkja er þeir ferðast um landið. Ljósmynd/Inspired by Iceland

Þeir sem samþykkja loforðið á vefsíðu Inspired by Iceland fá rafræna viðurkenningu sem þeir geta deilt á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #IcelandicPledge og í leiðinni hvatt aðra til að gera slíkt hið sama. Þá geta Íslendingar tekið þátt í að hvetja ferðamenn með því að deila vefsíðunni á samfélagsmiðlum.

Ísland er fyrsta landið til þess að bjóða upp á loforð sem hvetur ferðamenn til þess að ganga um landið á ábyrgan og öruggan hátt. Kemur það í kjölfarið á Iceland Academy herferðinni sem var sett í febrúar 2016 og snýst um það að upplýsa ferðamenn með skemmtilegum hætti um allar hliðar Íslandsferðar þeirra.

Kolbrún segir ferðamenn vilja ferðast með ábyrgum hætti en viti oft ekki hvað það felur í sér. Þar kemur „The Icelandic Pledge“ inn í. Loforðið nær til átta atriða sem stuðla að ábyrgri ferðahegðun eins og það að virða náttúruna, skilja við hana eins og komið var að henni, að keyra ekki utan vega, koma sér ekki í hættulegar aðstæður við að taka myndir, tjalda á viðeigandi tjaldsvæðum og að vera vel útbúinn á ferðum sínum um landið.

Ljósmynd/Inspired by Iceland
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert