Bíladagar á Akureyri hafa gengið vel samkvæmt þeim upplýsingum sem fengust frá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Engin stórvægileg atvik hafa komið upp en tveir hafa verið handteknir það sem af er hátíðinni.
Annar var handtekinn fyrir akstur undir áhrifum áfengis og hinn fyrir vörslu fíkniefna. Sá var með lítið magn amfetamíns í fórum sínum. Honum var sleppt að lokinni yfirheyrslu lögreglunnar.
Lögreglan segir hátíðarhöld hafa gengið vel fyrir sig og fá stórvægileg atvik komið upp, þó hafi eitthvað verið um ölvun hátíðargesta.