648 brautskráðust frá HR

Frá brautskráningunni í dag.
Frá brautskráningunni í dag. Ljósmynd/HR

Alls brautskráðust 648 nemendur frá Háskólanum í Reykjavík við hátíðlega athöfn í Hörpu í dag, þjóðhátíðardaginn 17. júní. 417 nemendur voru brautskráðir úr grunnnámi, 229 úr meistaranámi og tveir nemendur útskrifuðust með doktorsgráðu.

Í útskriftarhópnum voru 273 konur og 375 karlar. Um 3600 nemendur stunduðu nám við skólann á síðasta skólaári, að því er kemur fram í tilkynningu frá HR.

Ljósmynd/HR

Flestir luku námi frá frá viðskiptadeild háskólans, eða 229 nemendur, þar af rúmur helmingur, eða 117 með meistaragráðu og einn með doktorsgráðu. Frá tækni- og verkfræðideild háskólans útskrifuðust 199 nemendur, þar af 70 með meistaragráðu og einn með doktorsgráðu. Lagadeild útskrifaði 71 nemanda, þar af 32 með meistaragráðu. Tölvunarfræðideild útskrifaði 149 nemendur, þar af 10 með meistaragráðu.

Ljósmynd/HR

Í ávarpi sínu til útskriftarnema talaði Dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, meðal annars um yfirstandandi tæknibyltingu sem muni gerbylta störfum, framleiðslu, þjónustu, viðskiptum og samfélagi með aukinni sjálfvirkni, gervigreind og sýndarveruleika.

„Allt að helmingur þeirra starfa sem við þekkjum hér á landi í dag mun hverfa á næstu áratugum. Ef við erum ekki vel undirbúin, ef við erum ekki eins vel menntuð og nágrannalöndin, þá verðum við undir í samkeppninni,“ sagði Ari meðal annars í ræðu sinni, að því er kemur fram í tilkynningunni.

Ljósmynd/HR

Hann bætti við að engir væru betri en Íslendingar í að snúa blaðinu við á skömmum tíma og að það lægi skýrt fyrir hvað þyrfti að gera til að efla háskólastarf og bæta umhverfi fyrir nýsköpun.

„Takist okkur að gera það fljótt og vel, þá mun samkeppnishæfni Íslands stóreflast og samfélag okkar njóta aukinna lífsgæða. Og það sem skiptir jafn vel enn meira máli, frábærir menntaðir einstaklingar eins og þeir sem útskrifast hér í dag munu finna sín bestu tækifæri á Íslandi.“

Verðlaunahafarnir stilltu sér upp.
Verðlaunahafarnir stilltu sér upp. Ljósmynd/HR

Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, veitti verðlaun VÍ fyrir framúrskarandi námsárangur í grunnnámi. Þau hlutu að þessu sinni: Diljá Ragnarsdóttir, BA í lögfræði; Tómas Aron Viggósson, BA í lögfræði; Aron Björn Bjarnason, BSc í fjármálaverkfræði; James Elías Sigurðarson, BSc í tölvunarstærðfræði og Sindri Freyr Gíslason, BSc í viðskiptafræði.

Vignir Guðmundsson flutti hátíðarávarp.
Vignir Guðmundsson flutti hátíðarávarp. Ljósmynd/HR

Vignir Guðmundsson, einn stofnanda Radiant Games og MSc í tölvunarfræði frá HR árið 2015 flutti hátíðarávarp útskriftarinnar og Sigurlaug Guðrún Jóhannsdóttir, BSc í hugbúnaðarverkfræði, flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnemenda.

Útskrifarhópurinn í tölum:

Lagadeild 71

Grunnnám 39, meistaranám 32. Konur 33, karlar 38.

Tækni- og verkfræðideild 199

Grunnnám 128, meistaranám 70, doktorsnám 1. Konur 89, karlar 110.

Tölvunarfræði 149

Grunnnám 139, meistaranám 10. Konur 34, karlar 115.

Viðskiptadeild 229

Grunnnám 111, meistaranám 117, doktorsnám 1. Konur 117, karlar 112.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert