Stórum steini var kastað í rúðu á herbergi í húsi í Fossvogi á þriðja tímanum í nótt þar sem ung stúlka var sofandi. Lögreglan segir það mildi að hún slasaðist ekki. Ekki náðist í þann sem kastaði steininum.
Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að skömmu áður hafi verið tilkynnt um eignaspjöll og skemmdarverk við Furugrund í Kópavogi í næsta nágrenni við Fossvog. Þar kastaði ungur maður grjóti í þrjá bíla og braut í þeim rúður. Maðurinn fannst ekki.
Ekki liggur fyrir hvort sami einstaklingur hafi verið þarna á ferðinni.