Reyndi að ræna mann í Laugardal

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Tilkynnt um líkamsárás í Laugardal á ellefta tímanum í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var ráðist er á mann og reynt að ræna hann.  

Árásarmaðurinn hljóp á brott en var handtekinn skömmu síðar og vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu. Ekki er vitað um meiðsl mannsins sem varð fyrir árásinni.

Þá var tilkynnt um líkamsárás við Hlemm í miðborg Reykjavíkur. Árásarmaðurinn var einnig handtekinn og vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á slysadeild.  Ekki er vitað um meiðsl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert