Íslensk stjórnvöld hafa boðið Grænlendingum aðstoð vegna jarðskjálftans og flóðbylgjunnar sem skall á byggðinni Nuugaatsiaq í Uummannaq-firðinum í nótt.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Suka K. Frederiksen, utanríkisráðherra Grænlands, ræddu fyrr í dag saman í síma vegna jarðskjálftans og flóðbylgjunnar sem skall á byggðinni Nuugaatsiaq í Uummannaq-firðinum í nótt. Utanríkisráðherra vottaði grænlenska ráðherranum samúð sína vegna atburðarins og bauð fram aðstoð og stuðning íslenska ríkisins ef á þyrfti að halda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.
. In Uummannaq, #Greenland, people head up to mountains after #tsunami, #earthquake warning June 19. (PHOTO BY I. HEGELUND/ @sermitsiaqag) pic.twitter.com/8wDbHbsBAX
— Nunatsiaq News (@NunatsiaqNews) June 18, 2017
„Ég tjáði grænlenska utanríkisráðherranum að Ísland styddi Grænland og að við værum reiðubúin til að hjálpa og veita aðstoð eftir þörfum,“ segir Guðlaugur í tilkynningu.
Utanríkisráðherra Grænlands, Suka K. Frederiksen, sagði eftirfarandi eftir samtal ráðherranna: „Ég met mikils að starfsbróðir minn, utanríkisráðherra Íslands, skyldi hringja til mín í dag. Það er mikilsvert að íslenska ríkisstjórnin og íslenska þjóðin hugsi til okkar og bjóði fram aðstoð sína, ef þörf verður fyrir slíkt. Það er gott til þess að vita að við höfum náin tengsl og vinasamband og það sýnir að gott samstarf við nágranna okkar er mikilvægt á erfiðum stundum.“
Terrible tsunami in #Greenland. Our thoughts are with our friends and neighbours and the families that have suffered #Nuugaatsiaq
— Guðlaugur Þór (@GudlaugurThor) June 18, 2017
Frederiksen upplýsti einnig að á þessari stundu væru engar vísbendingar um að erlendir ríkisborgarar eða ferðamenn væru á þeim svæðum sem verst urðu úti. Tjáði hún utanríkisráðherra Íslands einnig að grænlenska ríkisstjórnin hefði verið upplýst um kveðjur og samhug ríkisstjórnar Íslands.