Hafnarfjörður kaupir St. Jósefsspítala

Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar og Benedikt Jóhannesson fjármála- og …
Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar og Benedikt Jóhannesson fjármála- og efnahagsráðherra undirrita samning um kaup Hafnarfjarðarbæjar á 85% eignarhlut ríkisins í aðalbyggingu St. Jósefsspítala. Ljósmynd/Hafnarfjarðarbær

Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, og Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, skrifuðu í dag undir samning um kaup Hafnarfjarðarbæjar á 85% eignarhlut ríkisins í aðalbyggingu St. Jósefsspítala. Fyrir átti Hafnarfjarðarbær 15%.

Við kaupin skuldbindur Hafnarfjarðarbær sig til að reka almannaþjónustu í húsinu að lágmarki í 15 ár frá undirritun samnings, að því er fram kemur í tilkynningu frá bænum.

Segir þar að með almannaþjónustu sé átt við starfsemi í félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu, menningar- eða fræðslustarfsemi eða annarri sambærilega þjónustu sem almenningur sækir í sveitarfélaginu.

„Hafnarfjarðarbær skuldbindur sig jafnframt til að hefja rekstur í fasteigninni innan 3 ára frá undirritun samnings. Kaupverð er 100 milljónir króna og húsið verður afhent 15. ágúst 2017. Verðið endurspeglar fyrirhugaða nýtingu hússins í almannaþágu. Þá er í samningnum ákvæði um hærra verð verði horfið frá þeim áformum,“ segir í tilkynningunni.

Bæjarfulltrúar Hafnarfjarðarbæjar og fulltrúar fjármála- og efnahagsráðuneytis hér með ráðherra …
Bæjarfulltrúar Hafnarfjarðarbæjar og fulltrúar fjármála- og efnahagsráðuneytis hér með ráðherra og bæjarstjóra eftir undirritun kaupsamningsins. Ljósmynd/Hafnarfjarðarbær

Fjölmargir aðilar sýnt húsnæðinu áhuga

Haft er eftir Haraldi bæjarstjóra að St. Jósefsspítali hafi mikið tilfinningalegt gildi fyrir íbúa og aðra velunnara Hafnarfjarðarbæjar.

„Mikill vilji er fyrir því að koma húsnæði í gott lag og í notkun sem fyrst. Fjölmargir aðilar hafa þegar sýnt húsnæðinu áhuga bæði til tímabundinna verkefna og til framtíðar litið. Nýskipaður starfshópur mun fá allar hugmyndir og fyrirspurnir inn á borð til sín og marka línurnar,“ segir hann.

„Við fögnum því að þessu sögufræga húsi verði sýndur fullur sómi og fundið nýtt hlutverk og að ríkið og Hafnarfjarðarbær hafi náð samkomulagi um fyrirkomulag sem tekur tillit til hagsmuna beggja,“ er þá haft eftir Benedikt Jóhannessyni fjármála- og efnahagsráðherra.

Engin starfsemi hefur verið í St. Jósefsspítala frá því að honum var lokað við árslok 2011. Viðræður við sveitarfélagið hafa staðið yfir síðan með hléum. Fjármála- og efnahagsráðuneytið tók yfir umsjón með spítalanum árið 2014 frá velferðarráðuneytinu. Heimild hefur verið í fjárlögum síðan árið 2013 fyrir sölunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert