Rannsaki flugvallarmálið

Ný gögn sýna að ákvörðun um varanlega lokun brautar lágu …
Ný gögn sýna að ákvörðun um varanlega lokun brautar lágu ekki fyrir við söluna á landi flugvallarins. mbl.is/ÞÖK

Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokks í Reykjavík, mun fela innri endurskoðun borgarinnar að rannsaka aðdraganda að lokun neyðarbrautar á Reykjavíkurflugvelli.

„Það þarf að yfirfara athafnir borgarinnar og hvort eitthvað sé ekki samkvæmt reglum eða heimildum,“ segir Halldór. Kanna þurfi hvort borgin hafi farið „fram úr sjálfri sér með úthlutun lóða þegar ekki var búið að loka brautinni“.

Tilefnið er meðal annars beiðni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis um að Ríkisendurskoðun rannsaki aðdraganda að lokuninni. Þá m.a. hvort eðlilega hafi verið staðið að sölu lands. Ný gögn sýni að ákvörðun um varanlega lokun brautar hafi ekki legið fyrir við söluna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert