Fornleifafræðingar ljúka í þessari viku uppgreftri í fornum kirkjugarði við bæinn Keflavík í Hegranesi í Skagafirði.
Þetta er þriðja sumarið sem rannsóknir þar fara fram, en á undanförnum árum hefur verið grafið í þremur kirkjugörðum heima við bæi í Skagafirði, auk þess sem umfangsminni rannsóknir hafa verið gerðar á öðrum stöðum.
Segja má að niðurstöður þessara rannsókna séu allar í sömu áttina, það er að á 11. öld var ungbarnadauði var algengur, meðalaldur lágur og erfiðisvinna hlutskipti flestra eins og sést á miklum vöðvafestingum þeirra beinagrinda sem fundist hafa. Tennur í beinagrindum sem fundist hafa benda jafnframt til að fólk hafi stundum liðið fæðuskort, að því er fram kemur í umfjöllun um rannsóknina í Morgunblaðinu í dag.