Segir af sér sem formaður Neytendasamtakanna

Ólafur Arnarson er búinn að segja af sér formennsku í …
Ólafur Arnarson er búinn að segja af sér formennsku í Neytendasamtökunum. mbl.is/Golli

Ólafur Arnarson hefur sagt af sér sem formaður Neytendasamtakanna. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá honum. Hart hefur verið deilt á Ólaf undanfarna mánuði vegna fjárhagslegra skuldbindinga. Ólafur var kjörinn formaður samtakanna í október á síðasta ári.

Stjórn samtakanna lýsti yfir vantrausti á hann í maí sl. og hefur hann ekki notið trausts stjórnarinnar síðan. Þá var öllu starfsfólki samtakanna sagt upp á dögunum vegna bágrar fjárhagsstöðu Neytendasamtakanna.

Í yfirlýsingu Ólafs segir hann taprekstur samtakanna mega skýra af miklum tekjusamdrætti en ekki auknum útgjöldum samtakanna. Segir hann þjónustusamninga við ríkið brot af því sem var áður fyrr og félagsmönnum hafa fækkað mikið. 

Ólafur var gagnrýndur fyrir að hafa hækkað laun sín sem framkvæmdastjóri og fyrir að hafa greitt sér laun fyrir fram. Þá gagnrýndi minnihluti stjórnar Ólaf fyrir að hafa haft bílaleigubíl til umráða sem samtökin borguðu fyrir og eins fyrir að hafa skuldbundið félagið fjárhagslega vegna smáforrits sem samtökin létu gera.

„Ég tók við formennsku í Neytendasamtökunum í október á síðasta ári til þess að freista þess að blása lífi í glæðurnar og nýta augljós tækifæri til nýrrar sóknar. Stærsta áherslumál mitt  var að nota tæknina í þágu neytenda með því að koma á fót appi fyrir snjalltæki, sem færir m.a. verðsamanburð í lófann á neytendum. Þremur mánuðum eftir að ég var kosinn formaður kynntu Neytendasamtökin, ásamt hugbúnaðarfrumkvöðlunum í Strimlinum ehf., appið Neytandann. Neytandinn er eitt vinsælasta appið á Íslandi og notendur eru orðnir á þriðja tug þúsunda. Vel á annað hundrað þúsund strimlar hafa verið lesnir inn í gagnagrunn og næstum 1,5 milljón verðmælingar. Á hverjum degi eru lesnar u.þ.b. 5000 verðmælingar inn í gagnagrunninn,“ segir Ólafur í yfirlýsingunni.

Þar segir hann þessari tækni hafa verið ætlað að renna styrkum stoðum undir nýja og umfangsmeiri þjónustusamninga við ríkið og endurreisa þannig viðunandi rekstrargrundvöll fyrir áframhaldandi starf samtakanna.

„Þegar stjórn samtakanna hefur nú tekið þá ákvörðun að segja upp öllu starfsfólki þeirra er ljóst að Neytendasamtökin hafa enga burði til að efna skuldbindingar sínar vegna núgildandi samninga og vandséð er að stjórnvöld muni ganga til nýrra samninga við samtök sem því miður virðast vera við það að liðast endanlega í sundur. Það er mikið áhyggjuefni og auðvitað yrðu það mikil vonbrigði ef samtökin næðu ekki að gegna áfram hinu þýðingarmikla hlutverki sínu í varðstöðu um hag neytenda í landinu,“ segir í yfirlýsingunni.

Vandinn ekki til kominn vegna útgjalda heldur tekna

Þá segir Ólafur stjórnina hafa borið hann þungum sökum sem enginn fótur sé fyrir. „Enginn fótur er heldur fyrir því að fjárhagslegur vandi samtakanna sé vegna útgjalda. Samtökin glíma við alvarlegan tekjuvanda og um það er stjórnin fullkomlega meðvituð enda þótt hún kjósi að skrifa margra ára uppsafnaðan vanda sinn á minn reikning,“ segir í yfirlýsingunni.

„Enda þótt ég telji mikið hafa áunnist í sókn Neytendasamtakanna á síðustu mánuðum og að sýnileiki samtakanna hafi aukist verulega verður ekki fram hjá því litið að óvinnandi vegur er fyrir mig að vinna að áframhaldandi framgangi þeirra við núverandi aðstæður innan stjórnarinnar. Ég vil þakka þeim fjölmörgu sem hafa stutt mig bæði í starfi mínu fyrir samtökin og einnig í átökunum innan stjórnarinnar. Ég segi hér með af mér sem formaður Neytendasamtakanna og læt um leið í ljós þá von að þeim sem standa munu við stjórnvölinn á næstu misserum og árum muni takast að rétta skútuna við.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert