Louise komin í leitirnar heil á húfi

Hinn 7. júlí barst lögreglu fyrirspurn frá Interpol í París. …
Hinn 7. júlí barst lögreglu fyrirspurn frá Interpol í París. Sáu ættingjar hennar ástæðu til að óttast um líf hennar, segir í tilkynningu frá lögreglunni. Samsett mynd

Louise Soreda, franska ferðakonan sem lögregla hefur leitað, gaf sig fram við lögregluna á Suðurlandi laust fyrir hádegi. Er hún heil á húfi og virðist við góða andlega heilsu, samkvæmt tilkynningu frá lögreglu.

Með Soreda í för var samlandi hennar.

Fjölskyldu Louise og Interpol í París hefur verið komið í samband við hana en hún mun halda ferðalagi sínu áfram. Lögreglan á Suðurlandi þakkar öllum þeim sem komu að leitinni og öllum þeim sem settu sig í samband við lögreglu, segir í tilkynningunni.

Fréttatilkynningin í heild:

„Eins og fram hefur komið í fréttum hefur lögreglan verið að leita að Louise Soreda 22 ára gamalli franskri stúlku sem kom til landsins laust eftir miðnætti 5. júlí sl. 7. júlí barst lögreglunni á Suðurnesjum fyrirspurn frá Interpol í París en Louise var leitað þar. Ættingjar hennar [höfðu] ástæðu til þess að óttast um líf hennar óskuðu eftir að grennslast yrði um ferðir hennar hér á landi.

Fyrstu upplýsingar um komu hennar til landsins voru litlar og reyndist ekki unnt að staðsetja hana í gegnum síma eða aðra samskiptamiðla. Koma hennar til landsins var staðfest og að hún gisti á hóteli í Reykjavík í tvær nætur en hún skráði sig út af hótelinu í hádeginu 6. júlí. Upptökur úr öryggismyndavélum bentu til þess að hún væri á ferðalagi með karlmanni sem var eins útbúinn og hún þ.e.a.s. með viðlegubúnað á bakinu. Fjöldi vísbendinga hefur komið fram um ferðir Lousie sem bentu flestar til þess að hún væri á ferðlagi um Suðurland. Nú í morgun fengust staðfestar upplýsingar um að hún hefði greitt fyrir þjónustu 11. júlí sl. af ferðaþjónustufyrirtæki sem er með starfsemi í Þórsmörk. Nú laust fyrir hádegi gaf hún sig fram við lögregluna á Suðurlandi heil á húfi. Henni var samferða samlandi hennar og virtist hún við góða andlega heilsu.

Fjölskyldu Louise og Interpol í París hefur verið komið í samband hana og mun hún halda ferðalagi sínu áfram. Lögreglan á Suðurnesjum þakkar öllum þeim sem komu að leitinni og öllum þeim sem settu sig í samband við lögreglu með upplýsingum um ferðir Louise.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert