Maður féll af hestbaki í Meðallandi

mbl.is/Hjörtur

Íslenskur karlmaður á sextugsaldri féll af hestbaki í Meðallandi milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs í kvöld. Kalla þurfti út björgunarsveitir á svæðinu til að aðstoða sjúkraflutningamenn við að bera hann að sjúkrabílnum. Tólf manns úr fjórum sveitum á svæðinu fóru í útkallið. 

Ekki er vitað um líðan mannsins en hann er á leið með sjúkrabíl. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert