Eldur í golfbíl í Mosfellsbæ

Eldur kom upp í golfbíl í Baugshlíðinni í Mosfellsbænum nú í hádeginu. Slökkvilið var kallað á vettvang. Búið er að slökkva eldinn, en slökkvilið er enn á vettvangi.

Engin meiðsl urðu á fólki að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, en golfbíllinn er í eigu golfklúbbs Mosfellsbæjar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert