Strætó býr sig undir komu skáta

Til þess að bregðast við álaginu mun Strætó senda út …
Til þess að bregðast við álaginu mun Strætó senda út aukavagna eftir bestu getu á þær leiðir þar sem álagið kann að vera sem mest. Eggert Jóhannesson

Strætó og Skátahreyfingin munu í sameiningu sjá til þess að leiðakerfi Strætó standist álagið vegna fjölda erlendra skáta sem hyggjast nýta sér almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó.

Nokkur þúsund erlendir skátar munu koma til lands­ins til að taka þátt í alþjóðlega skáta­mót­inu World Scout Moot sem fram fer hér á landi í lok mánaðarins. Bandalag íslenskra skáta gaf út tilkynningu vegna þessa, þar sem þau tjáðu áhyggjur sínar um að skátar myndu sprengja almennigssamgöngukerfi Reykjavíkurborgar ef Strætó brygðist ekki við. 

Til þess að bregðast við álaginu mun Strætó senda út aukavagna eftir bestu getu á þær leiðir þar sem álagið kann að vera sem mest. Fulltrúar Skátahreyfingarinnar munu á sama tíma reyna að dreifa álaginu í vagnana eins mikið og möguleiki er fyrir hendi.  

Um er að ræða stærsta skáta­mót sem fram hef­ur farið á Íslandi og stærsta mót á veg­um heims­hreyf­ing­ar­inn­ar fyr­ir þetta ald­urs­bil. Mótið hefst í Laug­ar­dals­höll þriðjudaginn 25.júlí og munu skátarnir gista í 11 skólum víðs vegar um höfuðborgarsvæðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert