Rútuslys á Gjábakkavegi

map.is
map.is map.is

Rútuslys varð á Gjábakkavegi á Suðurlandi um klukkan hálffimm nú síðdegis. 42 farþegar voru um borð í rútunni, en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi urðu ekki alvarleg slys á fólki. Ekki er vitað um tildrög slyssins, eða hvort rútan hafi oltið út af veginum.

Allt tiltækt lögreglu- og sjúkralið á Suðurlandi er nú á á staðnum eða á leið þangað, en ekki fengust frekari upplýsingar um slysið að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert