Skólpmengun hefur ekki áhrif á Kópavog

Mælingar gefa til kynna að skólpmengunin við Faxaskjól hafi ekki …
Mælingar gefa til kynna að skólpmengunin við Faxaskjól hafi ekki áhrif á Kópavog. mbl.is/Baldur

Svo virðist sem skólpmengunin við Faxaskjól hafi ekki áhrif á svæði innan Kópavogs. Mælingar voru gerðar í síðustu viku og verða þær endurteknar á fyrrihluta ágústmánaðar. Tore Skjenstad, sérfræðingur hjá heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, segir ekki ástæðu til þess að vara við mengun á svæðinu.

Taka sýni þrisvar á ári

Theódóra S. Þorsteinsdóttir, formaður bæjarráðs Kópavogs, hefur kallað eftir upplýsingum um það hvort skólpmengunin hafi farið inn í Kópavog. Að sögn Tore er tekið sýni meðfram ströndinni þrisvar á ári. Jafnan eru sýnin tekin í maí, ágúst og svo október.

Í síðustu viku voru tekin sýni vegna skólpmengunar við Faxaskjól. „Niðurstöður sýna að strandlengjan er svona nokkuð hrein þannig lagað,“ segir Tore í samtali við mbl.is.  „Það er eitthvað um staðbundna mengun hjá okkur, sem sagt yfirborðsvatn sem rennur út á nokkrum stöðum er svolítið mengað eða um 200-400 bakteríur í 100 millilítrum,“ segir Tore.

Ekki verra en hefur verið

Aðspurður hvort það sé meira en hefur mælst áður segir hann svo ekki vera. „Sýnið sjálft er tekið mjög nálægt þar sem vatn kemur út í sjóinn og ef maður fer nokkra metra frá þá er yfirleitt bakteríumagnið komið vel undir 100 [í 100 millilítrum], þetta þynnist hratt,“ segir Tore.   

Að sögn Tore lítur því út fyrir að skólpmengunin hafi ekki haft áhrif á svæði innan Kópavogs og hann telur ekki ástæðu til þess að vara fólk við mengun. „Straumarnir liggja í raun og veru frá Faxaskjóli út í Faxaflóa en ekki svo mikið inn í Fossvoginn,“ segir Tore að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert